11.Maí. Vertíðarlok -Uppgjör eða ekki?
11.maí. já hann er í dag og þessi dagur er ekki beint þekktasti dagurinn í kerfinu í dag. Þessi dagur
var lengi vel merktur sérstaklega í dagatölum hvers árs, enn núna er í flestum dagatölum ekki minnst á þennan dag
11.maí telst vera lokadagur vetrarvertíðar.
á árunum svo til frá 1940 og eitthvað fram yfir aldamótin 2000 , þá fylgdust skipstjórar með öðrum
og það var slagur fram á þennan dag 11.maí um það hver yrði aflahæstur í höfn, eða þá yfir allt landið.
það er mikið breytt núna. slagurinn er horfinn, en það er þó þannig að skipstjórar fylgjast með öðrum og menn vilja alltaf vera hærri enn hinn.
Ég og vertíðir
ég sjálfur hef alltaf haft mikinn áhuga á vertíðum, og hef fylgst með og skráð niður vertíðir alveg aftur til 1944.
bjó mér til viðmið, en það eru 400 tonn, og það þýðir að ef bátur nær yfir 400 tonna viðmiði þá kemst hann á lista yfir aflahæstu bátanna þá vertíð.
þannig hef ég getað borið saman vertíðir ár eftir ár.
Síðan árið 2005
síðan árið 2005 þá hef ég skrifað um fjallað um vertíðir það ár og farið síðan 50 ár aftur í tímann til að bera saman
fyrsta vertíðin var 2005 og var þá til samanburðar skoðuð vertíðin 1955.
til ársins 2017 þá skrifaði ég öll vertíðaruppgjörin í Fiskifréttir, enn upp frá 2017 þá fór ég að gefa það út sjálfur.
gefa út vertíðaruppgjörin öll árin þangað til núna.
Vertíðaruppgjör eða ekki?
málið er að þetta ár, 2026 er búið að vera frá ármótum eiginlega of mikið um að vera hjá mér. ég var að vinna mjög mikið
ásamt því að ég ásamt konunni minni vorum að vinna á fullu í nýja húsinu okkar í Sandgerði..
en við gipsuðum allt húsið, spörsluðum, máluðu, settum loftapanil, 89 ljós í húsið og parketlögðum allt húsið sjálf.
allt þetta tók mjög mikið tíma, svo mikin tíma
að ég hafði ekki tíma til þess að búa til vertíðaruppgjörið
fyrir vertíðina 2026..1976 og 1996.
þannig að eins og staðan er núna þá kemur ekkert vertíðaruppgjör út núna, en ég ætla að sjá hvort ég gefi mér tíma seinna í sumar eða haust til að búa
það til, eða þá sleppa því alveg,
ég hef ekki tekið ákvörðun um hvað ég geri,

Sandfell SU mynd Gísli Reynisson