70 tonna löndun hjá Bárði SH,2020
Það er ekkert lát á fréttum af mokveiðinni sem er í gangi núna.
netaveiðin í febrúar var mjög góð og 2 bátar náðu því að komast yfir 500 tonnin í febrúar,
Þórsnes SH og Bárður SH
Bárður SH fór reyndar í 600 tonn í febrúar,
Bárður SH byrjar mars mánuð með látum ef þannig má að orði komast
því þeir fóru út með 8 trossur og í hverri trossu eru 12 net, lögðu netin vestur í brún sem er skammt utan við Hellissand.
og lentu þar í vægast sagt rosalegri veiði,
því þeir komu í land til Ólafsvíkur með 70 tonn í bátnum,
þetta gerir því 8,8 tonn í trossu
Pétur Pétursson sagði í samtali við aflafrettir að báturinn nýi báturinn hefði borið þetta ansi vel
öll kör voru full af fiski, og þvottakörin voru líka full, smávegis var laust.
allur þorskurinn fór til vinnslu hjá Þórsnesi í Stykkishólmi en restin fór á markað.
ansi mörgnuð byrjun hjá þeim á Bárði SH í mars
Bárður SH með 70 tonn. Mynd Árni Guðjón