Aðalbjörg RE 5,2020
Dragnótabátunum sem róa frá Suðurnesjunum hefur fækkað mjög mikið undanfarin ár. t.d er enginn bátur í Grindavík núna sem rær á Dragnót dagsdaglega
þeir fáu dragnótabátar sem eru að róa eru allir í Sandgerði og er Nesfiskur þar með 3 báta,
Einn af þeim bátum sem þar eru að róa núna undanfarið er báturinn Aðalbjörg RE 5
Aðalbjörg RE 5 var smíðaður á Seyðisfirði árið 1987 og hefur alla tíð síðan heitið þessu sama nafni og verið með sama græna fallega litinn sem er á bátnu,
bátar er í dag 33 ára gamall og hefur verið mjög fengsæll í gegnum árin.
Það má geta þess að annar Reykjavíkurbátur átti sér langa sögu í Sandgerði Njáll RE, enn eftir að honum var lagt og seldur
þá fór hluti af áhöfninni á Njáli RE yfir á Aðalbjörgina RE.
Aðalbjörg RE er einn af fáum bátum sem eftir eru í dag sem eru í einstaklingsútgerð, en á bátnum er um 283 tonna kvóti.
mikið af kola er á bátnum t.d 96 tonn af skarkola.
Aðalbjörg RE myndir Gísli Reynisson