Aðeins 28 ára gamall með glænýjan bát. Östkapp


Trefjar í Hafnarfirði hafa verið duglegir í að smíða báta og bátarnir frá þeim hafa farið ansi víða um Evrópu,

Norðmenn eru mjög duglegir við að kaupa báta þaðan og núna nýverið var nýr bátur afhentur til Noregs

báturinn heitri Östkapp, enn það sem vekur kanski mesta athygli við þann bát er útgerðarmaðurinn 

Hann heitir Brynjar Eriksen Bangsund og hann er aðeins 28 ára gamall. 

enginn bátur svona stór hefur verið smíðaður fyrir íslenskan útgerðarmann sem er 28 ára gamall, enda eru 

svo til engnir íslenskir einstaklingar í útgerð að láta smíða fyrir sig báta. 


Hann hefur gert út síðan árið 2019 seiglu bát sem heitir Nordtind og veiddi t.d árið 2021 um 200 tonn á hann.  

Reyndar þá lentu þeir í bilunum í bátnum árið 2021. t.d þurfi að skipta um vél í bátnum.  þurfi að öxuldraga og skipta um skrúfu

og skipta þurfi um alla botnventla á bátnum,

Afhverju færa sig frá Seigur yfir í Cleopatra bát?.

Jú að sögn Brynjars þá eru gæðin í bátunum hjá Trefjum mjög mikil og góð og þeir hanna bátanna sína þannig að 

þeir henta mjög vel í línuveiðar.  

Östkapp er með ansi stóran kvóta eða samtals 866 tonn.  mest af því er ýsa 496 tonn, 338 tonn af ufsa og 32 tonn af þorski

Brynjar er búinn að fá bátinn sinn og er að gera hann kláran til veiða, enn hann mun róa frá Vardö í Noregi. 

Kaupverðið á bátnum er um 200 milljónir króna.

Hérna eru svo upplýsingar um bátinn.

Brynjar Bangsund útgerðarmaður frá Vardø fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36B beitningavélarbát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Brynjar verður sjálfur skipstjóri á bátnum.


Nýji báturinn heitir Østkapp. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 18brúttótonn.


Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V158 600hö tengd ZF500IV gír. Í bátnum er 20kw Rafstöð.


Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Olex og Simrad.


Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.


Báturinn er útbúinn til línuveiða með beitningavél.  Línuveiðibúnaður kemur frá Mustad. Ísvél er frá Kælingu ehf.


Lest bátsins rúmar 14stk 660lítra fiskikör.


Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.


Stór borðsalur er í brú og fullbúin eldunaraðstaða um borð.  Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar.  Salerni með sturtu.


Báturinn er kominn til Noregs eftir flutning og er reiknað er með að hann hefji veiðar á næstu dögum.




Öspkapp Mynd Trefjar.is



Nordtind gamli báturinn hans sem hefur verið seldur



Brynjar útgerðamaður Östkapp