Aflahæsti báturinn að 13 BT árið 2019. Blossi ÍS sokkinn,2020
Eins og hefur komið fram þá var gríðarlegt snjóflóð sem var um miðnætti í gær sem féll á Flateyri
og það orsakaði gríðarlega mikla flóðbylgju sem olli því að margir bátar sukku og skemmdust í höfninni á Flateyri,
Greint var frá í nótt á Aflafrettir.is hvaða bátar þetta voru,
einn af þeim er báturinn Blossi ÍS 225 sem er gerður út af fyrirtækinu Hlunnar ehf á Flateyri,
þessi bátur er um 12 tonn plastbátur og hann er gerður út á línu og færum frá Flateyri,
árið 2019 þá endaði þessi bátur aflahæsti báturinn á landinu í sínum flokki bátar að 13 tonn þegar hann landaði yfir 300 tonnin ,
Báturinn sást á einni myndinni enn þar var hann svo til allur sokkinn og er líklegast ónýtur,
Hlunnar ehf er fjölskyldu fyrirtæki enn 2 sjómenn eru á bátnum. 2 eru að beita á bátnum og síðan eru það hjónin sem eiga Hlunna ehf.
Þar er í forsvari Guðrún Pálsdóttir og sér hún um fjármálin í fyrirtækinu maður hennar Einar Guðbjartsson sér um allt daglegt sem fylgir rekstri bátsins,
Guðrún hefur fylgst mjög vel með Aflafrettir.is og hún hefur verið duglega að deila þegar minnst er á Blossa ÍS, sem sýnir að hún er stolt af sínum mönnum.
Hugur Aflafretta er hjá eigendum og starfsmönnum Hlunna ehf á Flateyri,
Blossi ÍS mynd Guðrún Pálsdóttir
AFtari báturinn Blossi ÍS