Álfur SH, minnsti báturinn með metafla,2018
Þá eru svo til flestir listann fyrir október komnir á síðuna nema örfáir,
ansi margt merkilegt á listunum og lokalistinn sem var að koma fyrir bátanna yfir 15 BT er nokkuð merkilegur,
fyrir það fyrsta þá komust aðeins 2 bátar yfir 100 tonnin þar sem að Otur II ÍS var aflahæstur,
en það sem kemur kanski mest á óvart er að minnsti báturinn sem er á þessum lista, og miðast þessi lista við báta sem frá 13 tonnum og að 15 tonn
Minnsti báturinn á þessum lista Álfur SH átti nefnilega ansi góðan endasprett ef þannig má að orði komast og kom með 19,3 tonní 3 róðrum og þar af 7,1 tonn í einni löndun og fór með því úr sæti númer 14 og alla leið í sæti númer fimm,
Þetta er nokkuð merkilegt því að Álfur SH var búin að vera að hanga í þetta sætum 14 til 19 svo til alla listanna í október. og var t.d 2 lista í sæti númer 15,
á lista númer 6 þá var báturinn í sæti númer 14 en landaði eins og áður segir 19,3 tonnum í 3 róðrum og komst með þeim afla í 5 sætið,
og það sem meira er að þessi afli 90,3 tonn er mesti afli sem að Álfur SH hefur náð frá því að báturinn byrjaði að róa á línu,
Álfur SH er í eigu útgerðarfélagsins Álfs í Ólafsvík og er núna með um 300 tonna kvóta eftir millifærslur frá öðrum bátum, og er báturinn 13,12 tonn að stærð og því minnsti báturinn sem er á þessum lista, bátar að 15 tonn.

Álfur SH mynd Alfons Finnson