Arnarlax fær umhverfisvottun,2019
Flott hjá þeim fyrir vestan
Laxeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic Sea Farm hafa fengið ASC umhverfisvottun á framleiðslu sína.
ASC (Aquaculture Stewardship Counsel er ein strangasta umhverfisvottun þegar kemur að fiskeldi og
þekkt um allan heim.
Allur lax sem framleiddur verður á Vestfjörðum árið 2019 verður vottaður en
bæði Arnarlax og Arctic Sea Farm eru staðsett á Vestfjörðum.
„Við erum mjög ánægð með að vera komin með ASC umhverfisvottun. Þetta er undirstrikar markmið
okkar um að stunda fiskeldi á sjálfbæran hátt í sátt við náttúru og samfélag“ Segir Kristian
Mattiasson framkvæmdarstjóri Arnarlax.
ASC vottunarstaðallinn hefur verið þróaður meðal annars af World Wildlife Fund (WWF) og
fiskeldisfyrirrækjum en til að fá vottun þurfa fyrirtækin meðal annars að lágmarka umhverfisáhrif,
starfa í sátt við samfélag og umhverfi.
ASC vottun er hliðstæð MSC staðlinum sem er þekktasti
umhverfisstaðallinn fyrir sjávarafurðir nema þessi staðall er aðlagaður eldisafurðum. ASC samtökin
sem að baki staðlinum starfa eru ekki rekin í hagnaðarskini (non-profit) og óháð samtök.
ASC vottunin hefur mikla þýðingu fyrir okkur þar sem okkar viðskiptavinir horfa töluvert til
umhverfisáhrifa og gera kröfur í þeim efnum. Við teljum að þessi áhersla á umhverfismál skili okkur
ákveðnu samkeppnisforskoti til lengri tíma“ segir Stein Ove Tveiten, framkvæmdastjóri Arctic Sea
Farm.
F
yrirtæki sem standast ASC vottun skuldbinda sig að lágmarka áhrif á umhverfið á ýmsa vegu. Taka
þarf tillit til villta laxfiskastofna, fugla, sjávarspendýra og annara lífvera sem búa í námunda við
eldissvæðin svo eitthvað sé nefnt.
Það var Svissneska vottunarfyrirtækið Bio Inspecta sem sá um ASC úttekt Arnarlax. „Það er
ánægjulegt að búið sé að taka út eldissvæði Arnarlax við Haganes og Steinanes og að fiskur af
þessum eldissvæðum sé vottaður. Núna getur Arnarlax boðið viðskiptavinum upp á lax sem er alin á
sjálfbæran og skynsamlegan hátt“ segir Roger Benz, gæðastjóri Bio Inspecta
Hvað felst í ASC vottuðu fiskeldi?
ASC vottun er ein strangasta umhverfisvottunin þegar kemur að fiskeldi í heiminum. Að staðlinum
komu margir hagsmunaaðilar. Fiskeldisfyrirtæki, söluaðilar, matvælaframleiðendur, vísindamenn,
opinberar stofnanir en staðalinn byggir á hugmyndafræði frá World Wildlife Fund.
Markmiðið er að lágmarka umhverfisáhrif vegna fiskeldis og að fiskeldi sé stundað í sátt við samfélög
og íbúa. Til að fá ASC vottun þurfa fyrirtæki að uppfylla strangar körfur er lúta að umhverfi,
vinnulöggjöf og samfélagi.
Líffræðilegur fjölbreytileiki
ASC-vottuð eldisfyrirtæki skuldbinda sig til að draga úr áhrifum á staðbundin vistkerfi á ýmsa vegu,
svo sem með þróun og framkvæmd áhættumats til að vernda fugla, sjávarspendýr og viðkvæm
búsvæði. Áhersla er lögð á að vernda vistfræði hafsins og að lágmarka líkur á að fiskur sleppi. Halda
þarf nákvæma skráningu yfir atvik er varðar dýralíf og þær upplýsingar þarf að birta opinberlega.
Fóður
Fyrirtækin þurfa að uppfylla strangar kröfur þegar kemur að fóðri. Lágmarka skal notkun á fiski úr
villtum stofnum og þeir komi úr sjálfbærum stofnum ásamt fullum rekjanleika hráefnis.
Mengun
Eldisfyrirtæki með ASC-vottun stunda viðamikla umhverfisvöktun sem felst í að mæla næringarefni,
súrefni og ástand sjávarbotns undir eldiskvíum. Eldissvæði þurfa að vera hentug frá náttúrunnar
hendi og fylgja þarf viðmiðum um fjölbreytileika dýrategunda.
Sjúkdómar
ASC-vottuð eldisfyrirtæki þurfa að lágmarka líkur að að sjúkdómar komi upp og berist frá
eldissvæðum. Gerð er krafa um samvinnu við önnur eldisfyrirtæki á svæðinu og dýralækna. Fylgjast
þarf vel með sníkjudýrum og lágmarka líkur á að þau eða meðhöndlun gegn þeim valdi fiski eða öðru
lífríki skaða.
Samfélagið
Gerðar eru miklar kröfur um samfélagsábyrgð sem meðal annars eru byggðar á meginreglum
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) Horft er til vinnuumhverfis, öryggi starfsmanna og sanngjörn
laun svo eitthvað sé nefnt. Mikil áhersla er lögð á samvinnu, samstarfs og samtal við íbúa, önnur
fyrirtæki og samfélagið í heild sinn
Hluti kvía Arnarlax.