Baader kaupir Skagann 3X
Á dögunum var gengið endanlega frá kaupum BAADER á meirihluta hlutafjár í Skaganum 3X.
Upphaflega
var greint frá kaupunum 29.október 2020. Með kaupunum hefst náið samstarf fyrirtækjanna við framleiðslu
og markaðssetningu tækja til matvælavinnslu.
Þar verður byggt á langri og heimsþekktri reynslu BAADER
ásamt sérfræðiþekkingu Skagans 3X á sviði kæli-, frysti- og vinnslutækni.
Í fyrsta skrefi samstarfs fyrirtækjanna verður lögð áhersla á nýtt alþjóðlegt sölunet. Þar mun sölufólk
BAADER og Skagans 3X leiða saman krafta sína og
þekkingu og verður sala tæknilausna fyrirtækjanna
samræmd með það að höfuðmarkmiði að viðhalda góðum tengslum fyrirtækjanna og viðskiptavina þeirra.
„Markmið okkar er að bjóða fyrsta flokks búnað og kerfislausnir á öllum helstu sviðum fiskiðnaðar sem
byggja mun á yfir 100 ára gömlum og djúpum rótum þekkingar og reynslu
okkar ágætu starfsmanna“ segir
Petra Baader forstjóri BAADER.
„Ég er hæstánægður með fyrirhugað samstarf fyrirtækjanna sem nú hefur verið innsiglað.
Síðustu 40 árin
höfum við ávallt lagt áherslu á nýsköpun og þróað hugvitsamlegar vörur fyrir iðnaðinn. Með sterkara
alþjóðlegu söluneti getur starfsfólk
Skagans 3X einbeitt sér betur að nýsköpun og fullnýtingu
framleiðslugetunnar á Íslandiׅ“ segir Ingólfur Árnason forstjóri Skagans 3X.
„Með nánu samstarfi munum við ekki
einungis efla getu okkar í vinnslu á öllum helstu fisktegundum heldur
ekki síður tryggja betur hámarksafrakstur vinnslunnar því með undirkælingartækn
Skagans 3X er hægt að
vinna fisk með nákvæmari hætti á sama tíma og ferskleiki og gæði afurða eru tryggð“ segir Robert Focke,
framkvæmdastjóri BAADER.
Samstarfi fyrirtækjanna er ætlað að styrkja stöðu þeirra á alþjóðavísu. Áframhaldandi vöxtur til framtíðar
mun fyrst og fremst byggja á hugviti,
þekkingu og reynslu starfsmanna ásamt nánum tengslum við
viðskiptavini fyrirtækjanna.
Stjórn Skagans 3X skipa nú Jeffrey Davis forstjóri ISEA Partners,
sem verður stjórnarformaður, Petra
Baader forstjóri BAADER, Robert Focke framkvæmdastjóri BAADER, Una Lovísa Ingólfsdóttir og Ingólfur
Árnason forstjóri Skagans 3X
Ráðgjafi Skagans 3X í kaupum á meirihluta í félaginu var veitt af Finnboga Baldvinssyni og Fjölni Finnbogasyni hjá FAB Consulting í Þýskalandi.
Set hérna inn mynd með svo fréttinn sé ekki myndalaus. hérna er frystitogarinn Hrafn GK sem hefur eða hafði vélar frá baader um borð
Mynd Gísli Reynisson