Bárður SH hvar endar þetta eiginlega??,2020
Heldur betur sem að áhöfnin á nýja Bárði SH er kominn á flug með nýja bátnum sínum
það virðst vera sem að enginn annar netabátur komist nálægt þeim,
í febrúar þá fór aflinn hjá Bárði SH yfir 600 tonn
og núna þegar þetta er skrifað þá er aflinn hjá bátnum kominn í 694 tonn í 21 róðri eða 33 tonn í róðri,
fiskurinn af þeim fer til vinnslu hjá Þórsnesi ehf í Stykkishólmi
og síðan er Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum að taka þorsk af Bárði líka til vinnslu,
enn vinnslustöðin hefur t.d millifært um 300 tonna kvóta yfir á Bárð SH meðal annars af Brynjólfi VE og Breka VE
Þess má geta að ísprósentan hjá bátnum myndi teljst vera frekar lá, enn hún er á bilinu 8 til 15 % en sumir netabátanna eru með um 20 % íshlutfall
held að það sé fátt sem getur stoppað það að Bárður SH verði aflahæsti netabáturinn á vertíðinni 2020.
Það má bæta við að gamli Bárður SH er kominn á veiðar og hefur landað 30 tonnum í 2 róðrum
en áhöfnin á Særifi SH sér um að róa á gamla Bárði SH, 100 tonn af þorski voru færð á bátinn frá Þórsnesi SH
Bárður SH mynd Vigfús Markússon