Bátar yfir 21 BT í Febrúar 2026.nr.2

Listi númer 2


mokveiði hjá bátunum og á þessum lista eru 29 bátar og 25 bátar af þeim hafa allir náð yfir 10 tonn í róðri
og til að bæta ofan á það þá hafa 7 bátar náð yfir 20 tonn í róðri,

Kristján HF er kominn suður og er búinn að vera að landa í Þorlákshöfn , og var með 67 tonn í 4 rórðum 

Indriði KRistins BA er kominn í Sandgerði og hefur veitt mjög vel þar, var með 58 tonn í 4 róðrum
en þessir tveir bátar voru aflahæstir inná þennan lista

og það munar aðeins um 2 tonnum á milli þeirra tveggja
Fjölnir GK var líka í Þorlákshöfn, og var með 46,5 tonn í 3 róðrum
Einar Guðnason ÍS 54 tonn í 4
Háey I ÞH 46 tonn í 4
Gísli Súrsson GK 45 tonn í 5

Indriði KRistins BA mynd Alfons Finnsson


Sæti Sknr Áður Nafn Heildarafli Fjöldi Mest Veiðarfæri Höfn
1 2961 6 Kristján HF - 100 168.3 10 29.3 Lína Stöðvarfjörður, Þorlákshöfn
2 3007 5 Indriði Kristins BA - 751 166.3 12 22.7 Lína Sandgerði,Tálknafjörður, Ólafsvík
3 2902 1 Stakkhamar SH - 220 158.8 11 22.7 Lína Rif
4 2400 3 Tryggvi Eðvarðs SH - 2 154.4 10 20.3 Lína Arnarstapi
5 2714 8 Fjølnir GK - 757 141.2 11 17.9 Lína Sandgerði, Þorlákshöfn, Grindavík
6 2911 2 Gullhólmi SH - 201 136.4 8 21.1 Lína Rif
7 2997 13 Einar Guðnason ÍS - 303 134.4 10 18.4 Lína Suðureyri
8 2868 9 Jónína Brynja ÍS - 55 132.0 11 15.0 Lína Bolungarvík
9 2995 10 Háey I ÞH - 295 131.0 7 25.2 Lína Raufarhöfn
10 2817 11 Fríða Dagmar ÍS - 103 127.3 11 14.3 Lína Bolungarvík
11 2841 12 Sandfell SU - 75 125.7 10 18.3 Lína Stöðvarfjörður, Djúpivogur
12 2860 7 Kristinn HU - 812 117.4 9 18.9 Lína Ólafsvík
13 2842 4 Óli á Stað GK - 99 112.8 8 17.3 Lína Sandgerði, Grindavík
14 2704 14 Bíldsey SH - 65 108.1 7 18.9 Lína Rif
15 3020 15 Guðbjörg GK - 9 102.2 8 17.0 Lína Sandgerði, Grindavík
16 2947 17 Særif SH - 25 99.9 7 17.3 Lína Rif
17 2912 18 Hafrafell SU - 65 87.1 7 16.2 Lína Stöðvarfjörður
18 2481 16 Bárður SH - 811 81.8 3 14.0 Net Rif
19 2878 21 Gísli Súrsson GK - 8 71.7 8 17.0 Lína Sandgerði, Grindavík
20 2999 19 Dúddi Gísla GK - 48 64.0 7 13.2 Lína Sandgerði
21 2888 20 Auður Vésteins SU - 88 57.1 7 21.1 Lína Stöðvarfjörður
22 2880 23 Vigur SF - 80 56.9 4 17.5 Lína Djúpivogur, Hornafjörður
23 1887 24 Máni II ÁR - 7 32.5 6 10.0 Lína Þorlákshöfn
24 1907 25 Emma Rós KE - 16 27.0 12 4.1 Net Keflavík
25 2908 22 Vésteinn GK - 88 26.1 2 16.7 Lína Sandgerði
26 1848 27 Sjöfn SH - 4 20.0 11 2.3 Plógur Stykkishólmur
27 2959 26 Öðlingur SU - 19 17.6 1 17.6 Lína Djúpivogur
28 2705 28 Sæþór EA - 101 13.1 8 3.2 Net Dalvík
29 1787 29 Eyji NK - 4 2.3 3 0.9 Plógur Eskifjörður