Bátarnir á Flateyri. ,2020

núna er liðin um einn og hálfur sólarhringur síðan risastóru snjóflóðin komu á Flateyri með þeim afleiðingum að svo til allir bátarnir sem voru 


á Flateyri sukku eða skemmdust,

enn hvaða bátar voru þetta

lítum aðeins á það,


Mynd  Önundur Pálsson

Myndin að ofan þá er það til vinstri Orri ÍS sem er hvað þekktastur fyrir að vera gamli Séniver eins og hann var kallaður.  sá bátur var smíðaður

árið 1957 og hét fyrst Þorleifur Rögnvaldsson ÓF  þá var hann afturbyggður, fór í gegnum miklar breytingar um 1980 og var þá gerður frambyggður,

landaði síðan í nóvember rækju í Sandgerði,


Orri ÍS mynd Vigfús Markússon

Báturinn til hægri á myndinni að ofan er Brói KE sem er 20 tonna stálbátur smíðaður í Garðabæ árið 1987. 

Hann landaði síðan í Bolungarvík í ágúst 2018 og var þá á handfærum,

Kári AK núna Brói KE mynd Sigurbrandur Jakopsson


Mynd Aðsend,

Tveir bátar eru verst farnir af bátnum þarna, og á myndinni að ofan má sjá aðeins í þá.  

stóri báturinn sem er á hvolfi er dragnótabáturinn Eiður ÍS 126.

sá bátur var smíðaður í Hafnarfirði 1982 og hét fyrsti Valur RE.  var lengi í Ólafsfirði og hét þar Eiður ÓF.

Hann landaði síðast í janúar árið 2019.


Eiður ÓF mynd Haukur Sigtryggur Valdimarsson,

Rétt hinum meginn við Eið ÍS liggur Blossi ÍS er er hann ásamt Eiði ÍS mjög illa farinn og líklegast ónýtur,


Blossi ÍS mynd Guðrún Pálsdóttir,


á myndinni hérna að ofan þá má sjá Sjávarperluna ÍS 

sá bátur var smíðaður árið 1999 og var síðan seldur úr landi 2007, var aftur keyptur til landsins 2012.   landaði síðast í júlí árið 2018.


Sjávarperlan ÍS mynd bátalif.is

Bátur númer 6 er svo Guðjón Arnar ÍS  enn hann hefur ekki sést á neinum myndum enda er talið að hann sé alveg sokkinn.

sá bátur er smíðaður í Hafnarfirði árið 1987.



Guðjón Arnar ÍS mynd Gísli Reynisson