Berglín GK seinkar á veiðar,,2017
Átti leið um Keflavík þegar ég sá að Berglín GK var á siglingu á leiðinni til Keflavíkur. Eitthvað var þetta furðuleg sjórferð því að skipið var búið að vera í slipp í tæpan mánuð þar sem meðal annars togarinn var málaður,
Um borð í Berglínu GK var meðal annars maður sem var að stilla kompásinn. enn við siglingu kom í ljós að viðnám fyrir skurð á skrúfunni var bilað og kanski alvarlegra var að svo virðist vera sem að glussi hafi komist inn í gírinn og hann var ekki að svara eins og hann átti að gera,
á þessari stundu er ekki vitað hversu alvarlega bilunin er í gírnum á Berglínu GK,
Um 1500 tonna kvóti er á Berglínu GK og hefur smá brot af honum verið fært yfir á Benna Sæm GK sem var að fiska ansi vel á dragnótinni. Benni Sæm GK og Berglín GK eru bæði í eigu Nesfisks í Garði.
Takið eftir neðstu myndinni. kanski má láta hana heita. komið í land á lofti og sjó
Myndir Gísli Reynisson