Berglín GK seld.
Togarinn Berglín GK átti sér ansi langa sögu í útgerð frá Suðurnesjunum
því að togarinn var smíðaður fyrir fyrir útgerð í Keflavík árið 1988 hjá STálvík í Garðabæ
fyrst hét báturinn Jöfur KE 17 og stundaði að mestu rækjuveiðar.
báturinn hét Jöfurs nafninu fram í júlí árið 1998 þegar að Nesfiskur kaupir togarann
og skírði hann Berglín,
í fyrsta túr togarans á árinu 2022 þá fór togarinn vestur á Hala og tók aðeins eitt hol, rúmlega 2 tonn og kom til hafnar
í Njarðvík og var eftir það lagt
síðan þá, hefur Berglín GK legið í Njarðvík þangað' til núna fyrir nokkru síðan
að togarinn lagði af stað í siglingu til SPánar,
en búið er að selja Berglínu til Morocco, og mun Berglínu GK fyrst verða silgt til Spánar og á endanum til Morocco.
Elmar Guðmundsson skipstjóri er að sigla Berglínu GK með sinni áhöfn,
Berglín GK mynd Gísli Reynisson