Binni í Gröf KE 127 árið 1979
Ég á orðið svo gríðarlega stórt safn af aflatölum , og finnst ansi gaman að fara í þennan risastóra gagnagrunn sem ég á
og fara með ykkur í ferðalag aftur í tímann
núna förum við aftur í ferðalag og förum aftur til ársins 1979.
Núna ætlum við að skoða eikarbát sem var gerður út frá Keflavík í um 10 ár. þessi bátur hét Binni í Gröf KE 127 og var um 80 tonna eikarbátur.
Eigendur af bátnum þessi ár voru Hallgrímur Færseth og Kjartan Sigurðsson.
Báturinn gerði út allt árið 1979 og var með úthald sem margir bátar af þessari stærð voru með, sem var vertíðin á línu, humar yfir sumarið og lína um haustið,
en byrjum á þessu, lítum á hvernig Binna í Gröf KE gekk árið 1979.
Janúar.
Báturinn hóf árið á línuveiðum og gekk ansi vel, var með 98 tonna afla í 18 róðrum , og landaði báturinn í sex skipti í Keflavík,
fimm skipti í Grindavík og 7 skipti í Sandgerði. Báturinn var með mestan afla landaðan í Sandgerði en þar landaði báturinn 56 tonnum í 7 róðrum.
Febrúar.
Binni í Gröf KE endaði janúar á því að róa frá Sandgerði og í Febrúar þá var báturinn á línu og landaði öllum afla sínum í Sandgerði
var með 82,6 tonn í 14 róðrum og 12,6 tonn mest í löndun , þetta gerir tæp 6 tonn í róðri.
Mars.
Í mars á þessum árum áður þá var mjög mikið um að bátar skiptu um veiðarfæri og fóru yfir á netin, en Binni í Gröf KE hélt sig við línuna alla vertíðina
og í mars þá var báturinn kominn til Grindavíkur og landaði þar 97 tonnum í 17 róðrum og mest 9,3 tonn í einni löndun
Apríl.
Binni í Gröf KE hélt sig áfram í Grindavík og var á línu og var með 76 tonn í 14 róðrum , og það gerir um 5,4 tonn í róðri.
Maí að 11. og Vertíðarlok
Báturinn kom til Keflavíkur og landaði 44 tonnum í 8 róðrum á línu
Vertíðaraflin hjá bátnum var alls 397,6 tonn sem allt fékkst á línu, og var því ansi nálægt því að ná 400 tonna viðmiðinu sem ég hef varðandi vetrarvertíðir.
Eftir 11.maí og út maí.
Báturinn fór yfir á humartroll og landaði í Keflavík 11,4 tonnum af fiski og 4,5 tonnum af humri í tveimur róðrum. en það skal tekið fram að humartölur sem er
talað um í þessum pistli miðast allt við óslitin humar
Júni.
Júni mánuður var nokkuð góður, en báturinn var áfram á humri og var alls með 12,8 tonn af humri og 27,5 tonn af fiski sem var landaði Keflavík í 6 róðrum.
samtals 40,3 tonn í júní.
Júlí
Júlí var líka nokkuð góður, en þá landaði Binni í Gröf KE, 10,2 tonnum af humri og 34,6 tonnum af fiski í 7 róðrum, eða samtals um 44,8 tonnum, og landaði báturinn í Keflavík.
Ágúst.
Binni í Gröf KE var kominn til Sandgerðis og landaði þar 10,3 tonnum af fiski og 6,5 tonnum af humri í þremur róðrum.
September
Eftir humarúthaldið í ágúst þá hóf báturinn veiðar seinnipartinn í september, og var þá kominn á línu og var með 14 tonn í 5 róðrum í Keflavík.
Október.
Báturinn var línu og landaði Keflavík 40 tonnum í 12 róðrum, en þó svo að báturinn landaði í Keflavík þá var hann að mestu við veiðar Norðvestur út frá Sandgerði
á slóðum sem enn þann dag í dag að línubátar frá Sandgerði eru við veiðar á.
Nóvember
Nóvember gekk nokkuð vel, en báturinn var með 80 tonn í 18 róðrum á línu og það gerir um 4,4 tonn í róðri.
öllum aflanum landað í Keflavík.
Desember.
Báturinn endaði árið á línu og landaði í Keflavík 47,7 tonnum í 12 róðrum.
Heildarafli.
Árið var nokkuð gott fyrir Binna á Gröf KE, hann var einn af þeim bátum sem réru oftar enn 100 róðra, en báturinn fór í alls 134 róðra
og heildaraflinn var alls 697 tonn,
og af þessum afla þá var humar 34 tonn og endaði báturinn í áttunda sæti yfir aflahæstu humarbátanna árið 1979.

Binni í Gröf KE mynd Vigfús Markússon