Bjarni Riddari VE 127 árið 1964
Það er orðið nokkuð langt síðan að ég fór með ykkur í ferðalag aftur í tímann, og á ég þá við að skoða aflatölur um báta
langt aftur.
Núna ætla ég með ykkur 62 ár aftur í tímann, til ársins 1964. og við förum við Vestmannaeyja. ætla að skoða þar einn bát og hvernig honum gekk á veiðum
árið 1964.
Báturinn sem um ræðir hét Björn Riddari VE 127, og sér nokkuð merkilega sögu því að báturinn var smíðaður í Englandi árið 1878
var á Akureyri frá Aldamótunuim 1900 og hét þá Jakob EA 7, og var með því nafni til 1951 þegar að Sigurður Gísli Bjarnason í Vestmannaeyjum
kaupir bátinn og skírði hann Björn Riddari VE 127., Báturinn mældist 45 tonn , enn var endurmældur og mældist þá 53 tonn.
Báturinn var talin ónýtur árið 1967 og var þá orðin 89 ára, sem gerir hann bátinn með elstu bátum sem hafa verið gerðir út á Íslandi.
ÁRið 1964
En skoðum árið 1964, Öfugt við flest alla báta sem gerðu út frá Vestmannaeyjum um þessi ár 1964 þá voru margir bátanna á netum yfir vertíðina
og fóru á troll, humar eða á síld. Björn Riddari VE aftur á móti var á trolli og humri allt árið 1964.
Janúar 1964
Báturinn réri ekkert í janúar
Febrúar 1964.
Björn Riddari VE hóf veiðar með trolli um miðjan febrúar og gekk nokkuð vel, var með 55,4 tonn í 7 róðrum, eða um 7,8 tonn í róðri og mest 10,5 tonn í einni löndun
Mars 1964
áfram var báturinn á trolli og var mokveiði hjá bátnum í mars, höfum í huga að þessi trollbátur var aðeins með 265 hestafla vél, enn landaði í mars
138,5 tonnum í 12 róðrum og það gerir 11,5 tonn í einni löndun, mest 18,7 tonn í einum róðri. mest var af ýsu í þessu afla
Apríl 1964.
Þarna var ekkert hrygningarstopp í gangi og apríl var alltaf góður, netabátarnir mokveiddu í apríl og Björn Riddari VE hélt sig á trollinu
og veiddi vel, var með 154,1 tonn í 18 róðrum , og það gerir 8,6 tonn í róðri. mest 19,6 tonn í einni löndun
Maí 1964
Báturinn fór aðeins í þrjá róðra í maí, enn gekk vel, var með 32,7 tonn í 3 róðrum eða 10,9 tonn í róðri
Júni 1964
Björn Riddari VE hóf humarveiðar í júní og var alls með 31,8 tonna afla í 8 róðrum og af þeim afla þá var humar 10,8 tonn
Júlí 1964
áfram var báturinn á humarveiðum og var alls með 18,3 tonn í 7 róðrum og af þeim afla þá var humar 5,4 tonn.
Ágúst 1964.
Báturinn var á humarveiðum og var töluvert af fiski með í aflanum því heildarafli í ágúst var alls 36,3 tonn í 5 róðrum og var humar af þeim afla 6,5 tonn
September 1964.
Báturinn réri lítið , fór í alls fjóra róðra og aflinn 23 tonn, og það gerir 5,8 tonn í róðri.
Október 1964
Báturinn fór aðeins í eina sjóferð enn hún gekk nokkuð vel og landaði bátuirnn 9,4 tonnum.
Báturinn réri ekkert í nóvember og desember
og árið 1964 endaði því þannig að heildaflinn hjá bátnum var 498 tonn í 65 róðrum , sem gerir um 7,7 tonn í róðri
og vertíðarafli bátsins var 348 tonn, humarafli um 22 tonn

Björn Riddari VE mynd frá Tryggva Sigurðssyni