Bjarni Sigurðsson í Noregi með nýjan bát,,2017

´Nýr bátur hjá Bjarna í Noregi  og þessi bátur fer á listann báta að 15 metrum í noregi sem er hérna á síðunni



Mynd Trefjar.ís



Ný 11metra Cleopatra 36B afgreidd til Tromsø

Útgerðarfélagið West Atlantic AS í Tromsø í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan
Cleopatra 36B beitningavélarbát frá Bátasmmiðjunni Trefjum ehf í Hafnarfirði.
Báturinn er systur skip TRANØY sem útgerðin fékk afhentan í upphafi árs 2016.

Að útgerðinni stendur Bjarni Sigurðsson.  Íslendingur sem verið hefur búsettur í
Noregi í áratugi.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Aksel B.  Báturinn mælist 18brúttótonn.  Aksel B
er af nýrri gerð Cleopatra 36B sem er sérhönnuð inn í undir 11metra veiðikerfið í
Noregi.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D13 550hö tengd ZF500IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem
tengdar eru sjálfstýringu bátsins.  Báturinn er útbúinn til línuveiða með
beitningarvél.  Beitningavélarkerfi og línuspil er frá Mustad og annar búnaður til
línuveiða frá Stálorku ehf.  Blóðgunarkerfi er umborð og sjókælir frá Kælingu ehf.

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 660L, 4stk 460L kör eða 29stk 460L kör í lest.  Í bátnum er
upphituð stakkageymsla með aðstöðu fyrir 4 skipverja.  Sæti fyrir áhöfn í brú. 
Svefnpláss er fyrir fjóra í tveimur aðskyldum klefum. Salerni og sturtuaðstaða í
lúkar.  Í lúkar ásamt fullbúinni eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.