Breytingar á listum á Aflafrettir. (að 21 BT og yfir 21bt),2020
Núna er árið 2020 komið í gang og það þýðir að listarnir árið 2020 fara að fara í gang hver af öðrum,
Aflafrettir.is ætla að gera smá tilraun núna fram eftir ári , lengur eða styttra, fer eftir því hvernig það gengur,
enn það er varðandi listann bátar að 21 BT og Bátar yfir 21BT
því á báðum þessum listum munu verða nokkrir norskir bátar sem allir eiga það sameiginlegt að eiga tengingu við íslands,
annaðhvort þa´með því að bátarnir eru smíðaðir á íslandi eða þá í eigu útgerðarmanna sem eru frá Íslandi,
Reyndar með einni undantekningu sem verður vikið að hérna að neðan,
Þeir norsku bátar sem munu verða með á lista Bátar að 21 BT Eru
Jakob N-5-G
Aksel B T-17-T samskonar bátur og Öðlingur SU
Norliner N-54-Q
Asta B T-209-T Nýjasti báturinn hans Bjarna Sigurðssonar, en þessi bátur var smíðaður árið 2019 og kom á flot í okt 2019
Þeir bátar sem munu verða með á listanum BÁTAR yfir 21 BT eru
Aldís Lind F-31-G
Austhavet F-107-G áður Saga K
Ólafur II N-99-Q
Einar N-31-Q
Selma Dröfn F-97-G
og síðan er það undantekninginn enn það er Ragnilde Kristine M-14-AK
Síðast nefndi báturinn á ekki neina tenginu við ÍSland enn ástæða þess að báturinn er með er sú að það kom ósk frá þeim sem eru á bátnum að vera með á listanum,
Eins og ég segi þetta er smá tilraun og munu því báðir listarnir verða aðgengilegir á aflafrettir.is og aflafrettir.com ensku síðunni.
Ásta B mynd Trefjar.is