Brotist í Dímon GK - 3 DNG stolið
Undanfarin ár þá hefur Bjössi skipstjóri á Dímoni GK frá Sandgerði verið einn af þeim sem róa á handfærum allt árið
og hann hefur verið ansi duglegur að sækja sjóinn, var til að mynda núna í sumar á strandveiðinni sá sem fór í flesta róðranna á D svæðinu
bátanna sem voru að veiðum við Faxaflóa.
Dímon GK fékk nýja vél núna fyrir áramótin síðustu, og eftir strandveiðarnar núna þá hélt Bjössi áfram að róa á Dímoni GK, að mestu
að eltast við ufsann í Röstinni.
Hann fór með bátinn yfir í Grófina því að báturinn þurfti að fara í smá viðgerð ,
en um nóttina þá vildi ekki svo betur til enn að tveir menn brutust inn á bryggjuna sem að Dímon GK var lagður við, fóru um borð í
Dímon GK og tóku í burtu og stálu, þremur DNG færarúllum. þeir reyndar losuðu fjórðu rúlluna, og voru búnir
að brjóta upp og skemma hurðina inn í brúnna á Dímoni GK, en einhver styggð hefur komið að þeim og þeir hurfu í land
með þessar þrjár DNG rúllur.
töluvert tjón er af þessu, en Bjössi var tryggður, en þarf engu að síður að borga töluvert í sjálfsábyrgð. en nýjar DNG rúllur eru á rumlega milljón krónur
og notaðar eru að seljast á allt að 730 þúsund krónur,( miðað við auglýsingu fyrir ári síðan)
Myndavél er við Grófina, og það sést í tvo menn sem fara í Dímon GK en myndavélin var ekki góð og það sést illa í bílinn sem þessir þjófar voru á
Gott er að hafa auga með ef þið sjáið þrjár DNG rúllur auglýstar, láta þá annaðhvort Bjössa vita eða Lögregluna á Suðurnesjum

Dímon GK Mynd Gísli Reynisson

DNG rúlla eins og er í Dímoni GK

Stæði fyrir DNG rúlluna í Dímoni GK, sést að búið er að klippa á rafmagnskapalinn Myndir Sigurbjörn Berg Bjössi