Dragnótaveiðar útum allt land og " ekkert kjaftæði"

þá er nýjasti dragnótalistinn kominn á Aflafrettir.is


SH bátur á Dalvík??

og það vekur athygli að Bárður SH er að landa á Dalvík,  hvernig getur það staðist að dragnótabátur frá Snæfellsnesi sé að landa á Dalvík?

Jú það var nefnilega þannig að dragnótaveiði var bundin við svæði.

svæði 1. var Suður og Vesturland, frá Stokksnesi og að Öndverðarnesi.  sem þýddi að bátar frá t.d Suðurnesjunum gat verið að veiðum alveg austur að Hornafirði og í Faxaflóanum.  

Reyndar var Faxaflóinn opinn aðeins um haust hvert ár,  

Svæði 2 var Breiðarfjörður og Vestfirðir.  þarna voru t.d SH, BA og ÍS bátarnir.  bátar sem voru t.d GK, KE eða ÁR máttu ekki veiða á þessu svæði

svæði 3 var Norðurland frá Horni og að Rifstanga.  þetta var nokkuð stórt svæði en þýddi það t.d að bátar frá Norðausturhorni landsins t.d Raufarhöfn og Þórshöfn máttu ekki veiða á þessu svæði

svæði 4 var svo frá Rifstanga og að Stokksnesi, á þessu svæði voru mjög fáir bátar,  einungis kanski Geir ÞH sem var stærsti bátuirn,

 Breytingar á reglugerð

í nýrri reglugerð sem að sjávarútvegsráðherra undirritaði þann 21.október árið 2019.

þá var ein stór breyting gerð á reglugerð um veiðar dragnótabáta ,

hún var sú að svæðisskipting var afnuminn og það þýðir að bátar geta farið um allt land til þess að veiða með dragnót.

og t.d má nefna að Bárður SH hefur verið að veiðum utarlega í Eyjarfirðinum 

Við vinnslu á gerð breytinga um það að afnema svæðisskiptingu á dragnótaveiðum þá voru ansi mörg álit lögð inn og merkilegt er að flest álitin voru þannig að menn voru sáttir við þáverandi svæðisskiptingu,

Álit þeirra sem studdu svæðaskiptinguna

t.d Geir Ehf.  segir " mitt mat er að það sé sátt um núverandi svæðaskiptingu", og áfram " einnig mætti opna svæði í Bakkaflóa, skarfatanga-digranes, á því svæði er bara skarkoli og enginn ástæða til að hafa lokað"

ÍS 47 ehf segir, " þokkaleg sátt ríkir um að svæðaskiptinginn verði óbreitt"

Sólberg ehf, " mælir með óbreyttri svæðaskiptingu"

Snurvoð ehf, Sigurgeir Steinar Þórarinsson orðar þetta ansi skemmtilega,  " til hvers að breita því sem vel gengur,  sé ekki þörf á þessum breytingum vil hafa þetta óbreitt og ekkert kjaftæði"

vík ehf útgerð Hafrúnar HU  segir " .. Ég tel að nokkuð góð sátt hafi skapast um dragnótaveiðar, og sé ekki ástæðu til að breyta þar miklu. Allra síst að afnema svæðaskiptingu, eins og kemur fram í þessum hugmyndum."

St2 ehf, ( Grímsey ST) mótmælti því að afnema svæðaskiptinguna, það sama sagði BBH útgerð ehf og líka Egilsson 

Útgerð Rifsara SH 70 var á móti fyrirhuguðum breytingum á að afnema svæðaskiptinguna, sama  með Esjar Ehf 

Álit þeirra sem studdu breytiingar á að afnema svæðaskiptinguna

 Hásteinn ehf,  Nesfiskur Ehf, og Hafnarnes Ver ehf studdu allir það að afnema svæðaskiptinguna

Magnús jónsson formaður Drangeyjar smábátafélags Skagafjarðar skrifar bréf og mótmælir þessu.  meðal annars með þessum orðum 

Undirritaður lýsir undrun sinni á, að skv. tillögum AVR um breytingu á reglugerð um veiðar með dragnót skuli það vera ætlun stjórnvalda að almennt verði heimilt að veiða með dragnót innan 12 mílna landhelginnar, eða eins og segir orðrétt í inngangi að greinargerðinni: “ Þannig mun leyfi til dragnótaveiða gilda innan 12 mílna um allt landið“. Verður að telja það undarlegt á sama tíma og verið er að þrengja að togveiðum víða um heim og jafnvel banna þær skuli Íslendingar ætla að opna enn frekar fiskveiðilögsöguna innan 12 mílna og upp í fjörur fyrir þessu togveiðarfæri. Veiðarfæri sem orðið er mun öflugra en hefðbundin troll voru fyrir um 60 árum, þegar hér var barist fyrir 12 mílna landhelgi. Og veiðarfæri sem sannanlega hefur valdið stórfelldri röskun á fiskigengd og afrakstri miða víða umhverfis landið, svo sem á Faxaflóa, Breiðafirði, Húnaflóa og Skagafirði svo nokkur dæmi séu nefnd.


Merkilegt þegar þetta er skoðað að aðeins 3 fyrirtæki studdu þessar breytingar og Nesfiskur lét nú heldur betur reyna á þessa nýju reglur í maí 2020 þegar 

Sigurfari GK var sendur til veiða í utanverðum Patreksfirði og mokveiddi þar, fékk 126 tonn í 3 róðrum.

smábátasjómenn fyrir vestan mómæltu þessum veiðum mikið og Einar Helgason formaður Smábátafélagsins Króks á Patreksfirði sagði að mikil óánægja hefði verið  með að Sigurfari GK hefði verið þarna að veiðum 

enda hefði hann truflað veiðar smábáta á þessum slóðum.

 Hvað sagði sjávarútvegsráðherra

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra sagði um þessar breytingar "Vegna þess að í grunnin er fiskveiðistjórnarkerfið gert á þann veg að menn geta sótt á sínum forsendum þann afla sem þeir hafa heimild til að taka"

 Faxaflóinnn
Eins stór breyting hefur líka orðið en það er að núna er t.d Faxaflóinn opinn öllum bátum sem eru styttri enn 24 metrar,  það hefur t.d þýtt að bátar sem aldrei höfðu stundað veiðar 

í Faxaflóanum fóru þangað .  

t.d Finnbjörn ÍS,  Esjar SH,  Matthías SH,  Reginn ÁR,  og Ásdís ÍS 


Reginn ÁR mynd Vigfús Markússon