Ekkert lát á mokveiði í netin. 5 tonn í eina trossu,2020
Það er ekkert að minnka mokveiðin í netin,
og eftir brælutíð undanfarið þá hafa nokkrir n etabátanna frá Keflavík verið að veiða utan við Straumsvík og
í smá bryggurölti í Keflavík þá kom þangað Hraunsvík GK með um 9 tonn í 4 trossur sem fékkst með netin þar
Bergvík GK þar sem að Hafþór er skipstjóri á , enn hann er einn á bátnum var í mokveiði,
hann fór út með 2 trossur enn dró aðeins eina trossu og í henni var um 5 tonn. Erlng KE dró trossu númer 2 fyrir hann,
Halldór Afi GK var með um 10 tonn í aðeins 2 trosssur eða aðeins 20 net.
Hraunsvík GK með allt fullt
Hraunsvík GK
Halldór Afi GK með allt fullt í 2 trossur
Bergvík GK
Risaþorskur. Myndir gísli Reynisson