Esköy í Noregi bætir við sig báti.,2020



Esköy í Noregi er fyrirtæki sem er bræðranna Helga og Hrafn Sigvaldasona.  Þeir létu smíða fyrir sig á sínum tíma 

bátinn Saga K sem gerði mjög góða hluti í Noregi en sá bátur hefur verið seldur og heitir í dag Austhavet.

Valdimar H
Esköy keypti bát  hérna á ÍSlandi sem hét lengst af Kópur GK, og síðan Kópur BA

þann bát skírði fyrirtækið Valdimar H F-185-NK og er báturinn að fiska með beitningavél og landar ferskum ísuðum fiski,

sem er frekar öfugt við stærri línubátanna í Noregi því flestir hausa fiskinn og heilfrysta og síðan er fiskurinn þíddur upp í landi og unnin þar,

Valdimar H átti ansi gott ár árið 2019 og landaði alls 2314 tonnum,

Núna hefur Esköy bætt við sig öðrum stálbáti.

 Nýr bátur
því núna um síðustu áramót þá keypti fyritækið bátinn 'Kamaro SF-7-S

Sá bátur er 38,78 metra langur og 8 metra breiður.  Smíðaður árið 2007 og er með 917 hestafla vél,

báturinn er á frystingu en mun um haustið 2020 fara á ís eins og Valdimar H.

Nýi báturinn hefur fengið nafnið Trygve B F-60-NK

og er Helgi Sigvaldason skipstjóri á nýja bátnunm.  núna þá er báturinn búinn að landa 143 tonnum sem var í einni löndun og fryst

AFlafrettir óska áhöfn og útgerð bátsinis til hamingju með nýja bátinn,



Trygve B Mynd Hlynur Freyr Vigfússon 


Mynd Valdimar Hrafnsson


Kamoro Mynd Bjoern Hansen