Eyborg EA komin í land eftir 39 daga siglingu

Bæjarprýði Akureyrar.


Á Akureyri rétt neðan við Kaupvangsstræti er Torfunesbryggjan og þar var í mörg ár legustæðið fyrir Súluna EA

og það mátti kalla hana bæjarprýði Akureyrar, því að Súlan EA var alltaf vel til höfð.

eftir að Súlan EA var seld í burtu frá Akureyri, þá lágu hinir og þessir bátar við Torfunesbryggjuna og 

 Eyborg EA einn af fjórum
einn af þeim sem lá þar í þónokkur ár var Eyborg EA frá Hrísey, en þetta var ansi sérstakur togari.

Togarinn var einn af nokkrum sem voru systurbátar, en þeir voru fjórir bátanna sem voru systurbátar

Haukafell SF, Þinganes SF, Æskan SF og síðan Eyborg EA,  Æskan SF heitir  í dag Drangavík VE og það er búið að lengja hann upp í 29 metra

allir þessir bátar voru um 26 metrar að lengd.

nema Eyborg EA

hún var sett í lengingu árið 1996, og var lengd um 19 metra sem er íslandsmet í mestri lengingu á íslenskum báti og togara.

Eftir að Eyborg EA var lengd þá stundaði togarinn að mestu rækjuveiðar og frysti rækjuna um borð.

Síðast árið 2016
síðasta löndun Eyborgar EA var í ágúst árið 2016, og lá síðan Eyborg EA við bryggju á Akureyri, og þar á meðal við Torfunesbryggjuna.

Eyborg EA var snemma í haust seld til Algoa Fishing í Cape Town í Suður Afríku, en þar fer togarinn til veiðar á humar í gildrur.  og mun allur búnaður

sem tilheyrir togveiðum verða fjarlægður úr skipinu.

 39 daga sigling
fór Eyborg EA frá Akureyri í lok september og framundan var mjög löng sigling .  því að leiðin frá Akureyri til Cape Town er um 8000 sjómílur eða 13500 kílómetrar

Eyborg EA kom til Cape Town í dag eftir alls 39 daga siglingu og var aldrei stoppað til að koma í land á þessari leið.

um borð í Eyborginni var alls 11 manna áhöfn og þar af var þar einn íslendingur.  Eyjólfur-Ludene Valtýsson sem var yfirvélstjóri á þessari löngu leið.

 Einn íslendingur um borð
Eyborg EA var á siglingu í samtals 39 daga og kom aldrei í land til að taka olíu, en togarinn fór frá Akureyri með alla tanka fulla af olíu 

og var að auki með 17 bamba fulla af olíu um borð. um 17 þúsund lítra aukalega af olíu.

Öll áhöfn skipsins á þessari siglingu voru Suður Afríku nema Eyfi, og var nægur matur um borð , en eitt og annað fór síðan að klárast


Vatnið um borð
en mesta vandamálið var með vatnið og Eyfi sagði að " Verst var með vatnið, það varð svo brúnt og hræðilegt eftir að líða fór á túrinn, enda skipið búið að liggja

óhreyft í mörg ár, við náðum samt í hreint drykkjarvatn á brúsa frá aftöppunarkrana undir gólfi í vélarrúminu"

 Eyfi 30 ár í Namibíu
Eyjólfur vélstjóri er vanur að vinna með sjómönnum frá Suður Afríku, en hann vann og bjó í Namíbíu í um 30 ár og skilur tungumálið nokkuð vel og þekkir venjur þeirra.

sjómenn þaðan eru ekki með sama lúxus og sjómenn á ÍSlandi og það má geta þess að þegar að Eyborg EA fer á humarveiðar þá mun verða 28 manns í áhöfn togarans.

 Hvernig gekk siglinginn?
En hvernig gekk þá siglinginn ,  siglinginn var frekar erfið, en þeir silgdu frá Akureyri í leiðinda veðri, og veður var orðið ágætt eftir færeyjar og þar eftir til Írlands

en gefum Eyjólfi orðið " En eftir það voru vindar og straumar okkur erfiðir, og hitinn og rakinn í hitabeltinu, það var ekki fyrr en við vorum komnir nálægt Angola sem að sjór

og loft fór að kólna, þökk sé kalda Benguela straumnum sem kemur upp með Suðvestur Afríku frá Suðurskautslandinu.  Straumurinn liggur upp með vestur strönd

Suður Afríku, upp með Namibíu og splittast svo og sekkur þegar hann fer upp með Angola"


 Langt ferðalag og sagði Eyjólfur að gamla Deutz vélin sem er í Eyborgu skilaði sínu og það vel


 Löngu ferðlagi lokið  og það er nokkuð merkilegt að bryggjan þar sem að Eyborg EA er, að á næstu bryggju er togari sem var í Sandgerði í mörg ár

og sá togari hét Sveinn Jónsson KE, og heitir togarinn ennþá Sveinn Jónsson 

Eyborg EA kveður Akureyri, Mynd Þorgeir Baldursson

Eyborg EA kveður, Birkir Sigurjónsson útgerðarmaður leysir landfestar

Eyborg EA kemur í Cape Town. 3.nóvember 2026 mynd Sveinn ingi Thorarinsson

Deutz vélin í Eyborgu EA sem stóð sína plikt og vel það mynd Eyjólfur vélstjóri



Cape Town Mynd Eyjólfur vélstjóri, 3.11.2026

Eyjólfur vélstjóri í þessari löngu ferð Eyborgar EA