Fullfermi hjá Óla á Stað GK,2020

óhætt er að segja að Febrúar hafi endað vel,


birt hefur verið frétt um mokveiðina hjá  Hafrafelli SU og Sævík GK,

en það voru fleiri bátar sem mokveiddu þennan dag.  

t.d var Gísli Súrsson GK með 26,4 tonn í einni löndun 

Daðey GK 20,4 tonn og þurfti að fara tvo róðra til þess að sækja aflann

Steinunn HF var með um 20 tonn og fór tvær ferðir til þess að sækja aflann,

og Óli á Stað GK kom með stærstu löndun sína frá upphafi,

Óli á Stað GK var sá línubátur sem oftast réri árið 2019 og hefur róið ansi duglega núna í febrúar

Hann fór í 22 róðra og fór í jafn marga róðra og Sandfell SU.

Óli á Stað GK lagði 17 þúsund króka og kom með í land 24,4 tonn og af því þá var þorskur um 21,6 tonn.

þetta eru um 40 balar og reiknast því þetta um 610 kíló á bala sem er mokveiði,

óðinn Arnberg skipstjóri var að vonum ansi ánægður með daginn enn öll kör og hólf voru full af fiski

og meira segja voru sett á efsta dekkið 2 kör sem full voru af fiski.

Með' þessum afla þá náði líka báturinn að rjúfa 200 tonna múrinn því aflinn hjá bátnum var um 204 tonn í 22 róðrum í febrúar,


Óli á Stað gK með 25 tonn Mynd Haddi Bjarna