Fullfermi og Metróður hjá Kristjáni HF

Þá er fyrsti listinn í október um báta að 30 tonnum kominn á Aflafrettir og hann byrjar vel


í September þá endaði Kristján HF hæstur, og hann byrjar október heldur betur vel

eða í raun vægast sagt rosalega vegna þess að Kristján HF kom drekkhlaðin í land til Neskaupstaðar

 Ekki margir bátar með 30 tonna landanir
Það er ekki mikið um það bátar í þessum flokki nái að koma með yfir 30 tonn í land í einni löndun og í sögu Aflafrétta

þá hafa aðeins tveir bátar náð því að koma með yfir 30 tonn í land í einni löndun, það er Kristinn SH sem kom með 31,5 tonn í land árið 2018

og var uppistaðan í þeim afla steinbítur, en þetta var á balalínu, 

og síðan kom Bíldsey SH með fullfermi til Siglufjarðar með 32,8 tonn í land í einni löndun,

 Vigur SF
Reyndar þá kom Vigur SF með 43 tonn í land eftir eina lögn, sem tvílandað var enda ber Vigur SF ekki 43 tonn.

þetta þýðir að Bíldsey SH átti metið um mestan afla í einni löndun.

þangað til núna..

því að Sverrir Þór Jónsson og áhöfn hans á Kristjáni HF kom drekkhlaðin til Neskaupstaðar með alls 33,2 tonn í einni löndun og var þorskur

uppistaðan í þeim afla eða 27 tonn.

Reyndar er nokkuð merkilegt hvernig báturinn fékk þennan afla,

 Tvær lagnir, tregt á fyrri lögn
Sverrir lagði línuna út frá Borgarfirði Eystri,  og var með tvær lagnir í þessum túr,

ein lögn í bátnum er 19500 krókar, og það samsvarar um 46 bölum.

veiðin eftir fyrstu lögnina var ekkert spes, aðeins 10,5 tonn sem er um 228 kíló á bala.

Veður var orðið frekar leiðinlegt þegar að Sverrir fór að leggja seinni lögnina en hann lagði bara eins og best var þannig að ná út á dýpið.

var hann með tvær tegundir af beitu um borð,

hann beitti um 9 rekka með smokki, en það er um 17 balar, en veiðin var treg á smokkinn, fékkst aðeins um 2,5 tonn á það, eða 147 kíló á bala

 Algjört mok á síldina
aftur á móti var restin af línunni á seinni lögn beitt með síld 

og heldur betur sem mokveiði var á þann hluta af línunni

því að restin af línunni sem myndi reiknast sem 29 balar

að mokveiði var á þann  hluta því að um 20 tonn komu á land frá þeim hluta af línunni sem var með síld

og það gerir um 689 kíló á bala, og það er ekkert  nema mok,

samtals kom því Kristján HF með í land eins og áður segir 33,2 tonn í einni löndun og þetta reiknast sem 357 kíló á bala



Kristján HF mynd gísli Reynisson


Kæru Lesendur.
Aflafrettir.is er rekin alveg að einum manni, mér 
Gísli Reynisson.  sé ég um að skrifa allt efni á síðuna
og margir hafa spurt hvort hægt sé að styrkja mig
og það er hægt . hérna eru upplýsingar 
kt 200875-3709
Bók 0142-15-380889
Takk kærlega fyrir
Gísli Reyniss