Fyrrum Ebbi AK , Nú Þorleifur EA skiptir um lit
Eymar Einarsson fyrrum útgerðarmaður og skipstjóri á Akranesi, átti í hátt í 40 ára báta sem hétu Ebbi AK.
Síðasti Ebbi AK var ansi stór plastbátur sem Eymar lét smíða fyrir sig árið 2007, og stundaði Eymar að mestu veiðar með netum
á Ebba AK og líka veiðar með sæbjúgu.
Bátarnir hans Eymars voru iðulega bláir á lit og þannig var það með síðasta Ebba AK Sem að Eymar átti, hann var fagurlega ljósblár á litinn.
seinniparts árs 2025 þá var kvótinn seldur af Ebba AK til Loðnuvinnslunar á Fáskrúðsfirði, en báturinn sjálfur var síðan seldur til Grímseyjar í september 2025
kaupandinn þar var fyrirtækið AGS ehf sem hefur gert út báta svo til jafn lengi og Eymar var með Ebba, eða í hátt í 40 ár.
Bátarnir hjá AGS hétu iðulega sama nafni, Þorleifur EA, og fyrrum Ebbi AK fékk einmitt nafnið Þorleifur EA.
Báðar þessar útgerðir, Eymar og AGS voru með stitthvoran litinn á bátunum, Eymar var alltaf með ljósbláan lit og í Grímsey
var Rauður litur þar alls ráðandi á Þorleifunum .
Nýi Þorleifur EA, ( fyrrum Ebbi AK) hélt sínum bláa lit þangað til að báturinn var tekinn í hús hjá JE,.Vélaverkstæði á Siglufirði
og báturinn kom þaðan út fallega rauður á litinn.
hvort líst ykkur betur á bátinn Bláan eða Rauðan?
ég mæli svo með að þið fylgist með facebook síðu JE , á Siglufirði, en þeir eru ansi duglegir að segja frá þeim verkefnum
sem er í gangi hjá þeim hverju sinni,

Þorleifur EA mynd JE Vélaverkstæði

Ebbi AK mynd Fiskimóttakan Akranesi