Fyrsti 15 tonna báturinn yfir 10 tonn í róðri. ,2019
September mánuður hjá bátar að 15 tonn var ansi sérstakur. aðeins 4 bátar komust yfir 100 tonnin og kanski það merkilegaasta var að
enginn bátur í þessum flokki komst yfir 10 tonna afla í einni löndun,
núna er október byrjaður og nú þegar hefur einn bátur komið með meira enn 10 tonn í land í þessum flokki,
og það er bátur sem er langt frá því að vera bátur sem hvað er hægt að kalla. þekktur bátur.
við höfum þekkta báta eins og t.d Tryggva Eðvarðs SH. Einar Hálfdáns ÍS, Guðmund Einarsson ÍS, Brynju SH
og fleiri,
nei enginn af þessum kom með þennan afla,
heldur var þetta báturinn Straumey HF sem kom með 10,7 tonn í land í Bolungarvík
var þetta svo til allt þorskur og fékkst þessi afli á 13.000 króka
það gerir um 31 bala eða um 345 kíló á bala,
og er þetta því fyrsti báturinn þetta fiskveiðiárið sem yfir 10 tonnin kemst þetta fiskveiðiári.
Allur þorskurinn var fluttur til vinnslu til Hafnarfjarðar en þar er fiskverkunin Iraco sem á 50% hlut í Friðfinni ehf sem á bátinn,
búið er að safna smá kvóta saman á Straumey HF og var úthlutaður kvóti á bátinn núna þetta fiskveiðiárið um 108 tonn miðað við þorskígildi,
Straumey HF með 11 tonn í Bolungarvík. Mynd Vilhjálmur Ólafsson