Fyrsti makríl afli Hoffells SU ,2018

Eins og hefur verið greint frá hérna á síðunni þá er makríl vertíðin hafin og Hoffell SU er kominn með sinn fyrsta skammt af makríl og mun landa á Fáskrúðsfirði á morgun 


Kvótinn á Hoffellinu er stór og hérna að neðan er viðtal við Berg Einarsson Skipstjóra á Hoffelli SU


Hoffellið er á leið í land með 600 tonn af makríl.  Skipið verður í heimahöfn á Fáskrúðsfirði um miðnætti, sunnudaginn 22.júlí.   Er þetta fyrsti markíltúr Hoffellsins á þessu ári.  Veiðin gekk afar vel og sagði Bergur Einarsson skipstjóri að markríllinn væri stór og fallegur, um 420 grömm að meðalvigt.  „Við fengum þennan afla í tveimur hollum út af Kötlugrunni“ sagði Bergur og bætti því við að allt hefði gengið mjög vel og að hann væri bara glaður.  Hoffellið á 9000 tonna kvóta af makríl þannig að vertíðin er rétt að hefjast og reiknar Bergur með því að fast verði sótt á miðin á næstu vikum.
Makríllinn fer allur til manneldis og verður unnin hjá Loðnuvinnslunni.
BÓA


Hoffell SU mynd Vigfús markússon