Gamla Dögg SU með nýtt nafn og miklar breytingar
Það er mikið búið að vera í gangi hjá FISK á Sauðárkróki. , undfarna mánuði hafa þeir verið að bæta við sig kvóta og bátum.
t.d keypt 60% hlut í Steinunni SH, keyptu bátinn Sellu GK og allur kvótinn af þeim bát var færður yfir á bát sem heitir í dag
Tryggvi Eðvarðs SH en var áður Hafdís SU.
Fyrr á þessu ári þá keypti fyrirtækið línubátinn Dögg SU og með honum fylgdi um 700 tonna kvóti.
Dögg SU hafði fiskað gríðarlega vel á línu undir skipstjórin Fúsa frá Hornafirði, og meðal annars þá á þessi bátur íslandsmetið
í mestum afla í einni löndun, því að báturinn kom með 24 tonn í land í einni löndun fyrir nokkrum árum síðan,
Nú er heldur betur búið að breyta þessum línubáti.
og það nokkuð merkilegt.
því að báturinn var í Hafnarfirði hjá Stálorku og þar var öllum línubúnaði fjarlægður úr bátnum og bátnum breytt til þess að
stunda netaveiðar.
þessi tegund af báti. Cleopatra 38 er ansi vinsæl á ÍSlandi en allir bátarnir sem hafa verið smíðaðir í þessari stærð hafa allir
verið á línu og er þetta því í fyrsta skipti sem að Cleopatra 38 er settur á netaveiðar.
Nýtt nafn komið á bátinn Lundey SK 3 og verður fróðlegt að sjá hvernig bátnum mun ganga á netum, en hann er kominn á Sauðárkrók
Þess má geta að mest allur kvótinn sem var á bátnum er kominn yfir á Tryggva Eðvarðs SH. og skipstjórinn á þeim báti er bróðir
framkvæmdastjóra hjá FISK.
Myndir gísli reynisson