Gamli Valbjörn ÍS orðinn ansi flottur. ,2020
Það var greint frá því hérna á Aflafrettir að fyrrum Þór Pétursson GK og síðar Helgi SH hafi verið seldur og er báturinn núna kominn með nafnið
Tindur ÍS skráður á Flateyri.
Fyrir átti fyrirtækið sem keypti Helga SH annan bát fyrir og sá bátur hét Tindur ÁR
núna hefur sá bátur fengið nafnið Drangur ÁR 307 og er hann búinn að vera á mikilli yfirhalningu í slippnum í Njarðvík
og óhætt er að segja að hann sé orðin glæsilegur,
Þessi bátur sem á sér sögu í Njarðvík, en báturinn var smíðaður ´í Njarðvík af vélsmiðjunni Hörður hf og hét fyrst Haukur Böðvarsson ÍS
er orðinn ansi glæsilegur í dag , mun báturinn verða upp í slippnum fram í júlí og fer þá á flot
og hérna að neðan má sjá mynd af honum þegar hann hét Valbjörn ÍS
og síðan að neðan nýja mynd af bátnum undir nafninu Drangur ÁR
Tindur ÁR mynd Sigurður Bergþórsson
Drangúr ÁR áður Tindur ÁR í slippnum í Njarðvík. Mynd Svenni.