Gullver NS hættur veiðum og seldur
Það er ansi mikið búið að gerast í togara málum hérna við landið núna á þessu ári
og þá aðalega á Austurlandi.
Því breytingar hafa orðið á útgerð tveggja mjög þekktra togara í útgerð þaðan,
annar af þeim er Gullver NS.
Seyðisförður
Þjóðvegurinn frá ÍSlandi til Evrópu liggur í gegnum bæin Seyðisfjörð því að þar gengur ferjan Norræna sem siglir
með viðkomu í Þórshöfn í Færeyjum til Hirtshals í Danmörku.
Reyndar til þess að komast á Seyðisfjörð þá þarf að fara yfir hina illræmdu Fjarðarheiði sem liggur hæst í um 620 metra hæð yfir
sjávarmál og oft er þessi heiði mikill farartálmi á veturnar.
Þó svo að Seyðisfjörður sé ekki stór bær, þá hefur bærinn verið stór gagnvart sjávarútveginum og þá aðalega
varðandi uppsjávarfisk, eins og loðnu, síld, kolmuna og makríl, Því það var þannig að til að mynda frá 1970 og vel fram yfir 2000
þá var mjög miklu magni sérstaklega af loðnu landað á Seyðisfirði og var oft bærinn með næst mesta eða mesta
loðnuafla landað á landsvísu.
Togarar frá Seyðisfirði
Frá Seyðisfirði hafa nokkrir togarar verið gerðír út, þar á meðal Ottó Wathne NS, Gullberg NS og síðan Gullver NS
Gullver NS kom til Seyðisfjarðar árið 1983 og var togarinn gerður út í 43 ár, en síðasta löndun togarans var í mars núna árið 2026.
útgerð Gullvers NS gekk vel öll þessu 43 ár, og einn hluti af útgerð skipsins var að hann silgdi reglulega með aflan erlendis
á markað.
Gullver NS
Gullver NS kom til Seyðisfjarðar í júlí árið 1983, og var smíðaður í Flekkefjord í Noregi, en Gullver NS var togari númer 12 sem að
var smíðaður þar fyrir íslendinga. Fyrsti skipstjóri á Gullveri NS var Jón Pálsson
Axel Jóhann Ágústsson tók við Gullveri NS árið 1988 og hann var með Gullver NS til 2011 eða í 23 ár.
Þá tók Rúnar L Gunnarsson við Gullveri og var hann með togarann í 10 ár, enn Rúnar hafði verið á Gullveri NS síðan að togarinn
kom árið 1983 eða í 37 ár þegar að Rúnar hætti á honum.
Litabreyting
Gullver NS var mest alla sína tíð með appelsínu gulan lit, en þegar að Síldarvinnslan á Neskaupstað eignaðist Gullberg ehf og þar með Gullver NS
þá breyttist liturinn á Gullveri NS úr appelsínulit yfir í dökkbláan sem er liturinn sem á skipum SVN.
ansi skiptar skoðanir voru þessum litabreytingum, enn mér fannst hann nú fallegri appelsínugulur.
Eins og segir þá kom Gullver NS árið 1983 til Seyðisfjarðar og þá var þar gamli Gullver NS enn sá togari var gerður út til júní og síðasta löndun gamla
Gullvers NS var á Seyðisfirði 3,júní árið 1983 og þá kom togarinn með 62,2 ton í land
Aflaftölur árið 1983
Fyrsta löndun nýja Gullvers NS var 25.júlí árið 1983 og kom þá togarinn með 144,8 tonn í land.
ágúst mánuður árið 1983 var ansi góður enn þá landaði Gullver NS alls 473,2 tonnum í aðeins þremur löndunum og mest 182,6 tonn.
Steptember árið 1983 var líka góður enn þá landaði Gullver NS 483,5 tonnum í 4 löndunum og mest 170,4 tonnum,
Fyrsta árið sem að Gullver NS Var gerður út þá landaði togarinn öllum afla sínum á Seyðisfirði
nema 1.desember , en þá kom togarinn með 118 tonn til Færeyja.
Heildarafli fyrsta árið sem að Gullver NS Var gerður út var 1766,6 tonn í 15 löndunum og mest 182,5 tonn og síðan 170,4 tonn.
Seldur
Núna hefur Gullver NS verið seldur til Gambíu og hefur fengið nafnið Elizabeth H og mun togarinn fara til veiða á rækju sem verður fryst um borð,
Rækjan sem togarinn mun veiða er töluvert stærri enn rækjan hérna við landið enn magnið er ekki mikið en verðmætin töluverð.
Gullver NS hefur legið í Hafnarfirði síðan í mars, og er nafn komið á togarann þar

Gullver NS Mynd Gísli Reynisson

Gullver NS Mynd Þorgeir Baldursson