Hafrafell SU , smekkfullur bátur og það í 2, skipti,2020

Ansi ótrúlegur Febrúar mánuður,


eitt orð sem einkennir þennan mánuð.  

MOK.

þvílík veiði hjá neta og línubátnum,

sérstaklega við Suðurlandið  og hjá bátunum sem voru að róa frá Þorlákshöfn, Grindavík og Sandgerði,

Nokkrar fréttir munu koma næstu daga um mokið

byrjum á Hafrafelli SU.

Hafrafell SU var á leið suður til veiðar á Föstudaginn síðastliðinn

þegar þeir fundu ansi góða lóðningu við Meðallandsbugt, og hendu þar línu niður,

og óhætt er að segja að þeir heldur betur lentu í veislu.  


Veður var frekar vont á þessum slóðum , en þeir komust klakklaust til Þorlákshafnar með drekkhlaðinn bátin.

og aflinn 26,3 tonn , af því var þorskur 23,5 tonn.  

en þetta er ekki allt, deginum eftir þá var báturinn með 16,8 tonn af þorski og kom síðan 29.feb

aftur drekkhlaðinn til Þorlákshafnar með 25 tonn af þorski.   ( vantar meðafla inní 28 og 29 feb)

Alls kom því Hafrafell SU með 68,3 tonn í 3 róðrum.

Aflafrettir komust ekki sjálfir til Þorlákshafnar til þess að mynda enn auglýsti eftir einhverjum til þess að taka myndir

og það voru tveir sem fóru og tóku myndir.  færi ég þeim bestu þakkir fyrir það.


Hafrafell SU með 26,4 tonn á föstudeginum, Mynd Beggi Skipstjóri á Jóni Ásbjörnssyni


Hafrafell SU með 26 tonn .29.feb


Myndir Magnús Þ. Haraldsson