Hrun í netaveiðum frá Hornafirði. ,2020

Núna er  vetrarvertíðin 2020 kominn í gang og hún byrjar nú alls ekki vel, því sjaldan eða aldrei hafa verið jafn vond veður 


og einmitt núna í janúar.  bátar lítið komist á sjóinn .  

netabátarnir eru nokkrir komnir af stað, en þeim fer fækkandi ár eftir ár.

Hornafjörður hefur um árabil verið einn af stærstu netaútgerðarstöðum landsins.

og í fjölda ára þá voru þetta 15 til 20 netabátar að róa frá Hornafirði vertíð eftir vertíð.  

en það hefur breyst svo um munar.  eins og sést hérna í smá yfirliti að neðan. 

1983

og rétt er bara að skoða 37 ár aftur í tímann.  

því árið 1983 þá voru 19 netabátar að róa frá Hornafirði.  

og ef nokkur nöfn eru gefin upp þá má nefna t.d

Hvanney SF ,  Bjarni Gíslason SF,  Freyr SF,  Lyngey SF,   Haukafell SF,  Heinaberg SF,  Sigurður ÓLafsson SF,  Magnús NK,  Vísir SF



1993

Færum okkur aðeins nær og skoðum árið 1993.

þá voru ennþá nokkuð margir  netabátar á Hornafirði.  

því þeir voru alls 14 bátarnir , t.d Skógey SF.  Hvanney SF.  Lyngey SF,  Freyr SF og Sigurður Ólafsson SF

2003

 Árið 2003 þá fjölgaði bátunum aðeins og voru þeir 18 bátarnir.  og þarna var þá líka Sigurður Ólafsson SF

2013

 Hérna er kominn mikil fækkun netabátanna á Hornafirði.  því þeir eru einungis 4.  Skinney SF.  Þórir SF, Hvanney SF og Sigurður Ólafsson SF

og þa´má geta þess að þessi fjöldi netabáta á Hornafirði hélst alveg fram til ársins 2019.

núna árið 2020 þá er aðeins einn netabátur á vertíðinni 2020.

og verður það.  Því búið er að selja Hvanney SF og endurbættir Skinney SF og Þórir SF munu halda sig við trollið. 

Þannig að eftir stendur að Sigurður Ólafsson SF sem á um 40 ára útgerðarsögu frá Hornafirði sé eini netabáutirnn sem eftir er á Hornafirði.



Sigurður Ólafsson SF mynd Viðar Sigurðsson