Huginn VE landar í Írlandi. ,2020

Það lítur út fyrir að enginn loðnuveiði verði í ár eins og var árið 2019, enginn loðnuveiði,


þess í stað eru skipin farin af stað til  þess að veiða kolmuna,

en skipin eru mjög langt í burt.  eru að veiða djúp úti af Írlandi eða í 800 sjómílna fjarðlægð frá íslandi,

 Huginn VE
Huginn VE frá Vestmannaeyjum  fór fyrir rúmri viku síðan á kolmunamiðin útaf Írlandi og náðu að fylla skipið um 1900 tonn,

Guðmundur Huginn skipstjóri sagði í samtali við Aflafrettir að þeir hafi fengið ansi mikið óveður fyrstu daganna en síðan lægði 

og þá lagaðsti veiðin.  ekki hafði hann tölu á því hversu mörg togin voru, en minnsta togið var 150 tonn, en það stærsta var 550 tonn,

Mjög mörg skip voru þarna af veiðum utan við Írsku lögsöguna.  t.d skip frá ÍSlandi,  Færeyjum Noregi, Rússlandi, Danmorku, 

og Bretlandseyjum.  Írsku skipin voru reyndar við veiðar inní þeirra eigin lögsögu.

öll íslensku skipin sigla heim til ÍSlands með kolmunann og tekur sú sigling um 3 til 4 daga.

Írland
þeir á Huginn VE fóru aftur á móti til Killybegs í Írlandi.  þessi bær er ekki stór aðeins um 1200 manns sem búa þarna

en aftur á móti þá er þarna mjög góð höfn með um 12 metra dýpi miðað við fjöru.

Pelagia Killybegs
þar er uppsjávarverksmiðja sem heitir Pelagia Killybegs og er  í eigu Norska stórfyrirtækisins Pelagia sem á og rekur 28 verksmiðjur 

 í Bretlandi,  Írlandi,  Danmörku, Noregi og Úkraínu og er þessi verksmiðja að taka á móti  mest öllum uppsjávarfiski sem berst á land til Írlands

Huginn VE kom þangað með um 1900 tonn af kolmuna og hafa þeir landað þarna áður, en þeir lönduðu þarna árið 2019,

að sögn Guðmundar þá eru 2 aðalástæður þess að þeir ákveða að landa í Írlandi,

 Hærra verð og lægri olía

fyrir það fyrsta þá er hærra verð greitt fyrir kolmunann þar en í Íslandi og auk þess er olían lægri,

þeir fá  um 36,5 krónur fyrir kílóið af kolmuna í Írlandi en sama verð á ÍSlandi er um 26 krónur.  

þetta gerir aflaverðmæti uppá 69,4milljónir króna.  miðað við 49,4 milljónir króna á íslandi,

auk þess er olían um 20 krónum ódýrari í Írlandi en á ÍSlandi og  það munar um minna,

bara sem dæmi ef þeir taka 300.000 lítra af olíu þá sparar útgerðin sér u m 6 milljónir króna í olíukostnað.

og að auki þá er þetta mikill sparnaður í siglingu, því þeir voru aðeins um 300 sjómilur frá írlandi á veiðum miðað við um 800 milur frá ÍSlandi,

Fékk senda myndir úr túrnum og hérna kemur brot af því,













Myndir Óskar Sigurþórsson