Hvar er Guðjón Arnar ÍS ??,2020

Afleiðingar af þessu rosastóra snjóflóði sem féll á höfnina á Flateyri fyrir nokkrum dögum síðan eru alltaf betur og betur að koma í ljós


núna hafa sést myndir yfir höfnina og það sjá 5 bátar þar hálfsokknir, eða mikið skemmdir,

enn þeir voru 6.

sjötti báturinn var nefnilega Guðjón Arnar ÍS 

enn hann hefur ekki sést á neinum myndum,

svo hvar er hann?

jú það tók smá tíma að finna hvar hann er. 

það kom nefnilega í ljós að Guðjón Arnar ÍS liggur á botni hafnarinnar 

á myndinni að neðan má sjá hvar Orri IS liggur,

Guðjón Arnar ÍS liggur bak við Orra ÍS og liggur þar á hliðinni á botninum á 5 metra dýpi,




Mynd aðsend


Guðjón Arnar ÍS mynd Gísli Reynisson