Hvar var Margrét GK?. Endaði feb.glæsilega.,2020


Já fjallað hefur verið ansi vel um þennan merka dag 29.febrúar og mokveiðina  hjá bátnunum en það er einn bátur sem vert er að gefa gaum,

en það er Margrét GK 

Margrét GK var nefnilega ekki þarna í mokinu fyrir utan Grindavík né fyrir utan Þorlákshöfn,

nei hann Helgi skipstjóri fór nefnilega á allt aðrar slóðir enn hinir bátarnir og var á stað þar sem hann var alveg einn útaf fyrir sig,

hann fór  nefnilega á mið sem kallast Hólakantur og eru þau mið áleiðiis að Eldey 

þar lagði hann 17 þúsund króka eða um 40 bala,

kom í land með fullfermi eða 18,8 tonn og gerir það um 470 kíló á bala sem er feikilega gott

Helgi og áhöfn hans á bátnum átti mjög góðan febrúar mánuð 

því að Margrét GK fiskaði alls um 220 tonn í aðeins 17 róðrum eða 12,9 tonn í róðri,

urðu aflahæstir bátanna sem voru að róa frá Suðurnesjunum og ekki nóg með það heldur lenti Margrét GK 

í Þriðja sætinu í sínum flokki bátar yfir 21 BT, aðeins Patrekur BA og Sandfell SU voru aflahærri,

Flottur árangur hjá áhöfninni á MArgréti GK


Margrét GK mynd Reynir Sveinsson þarna með um 18 tonn.