heyriru muninn á hljóðinu í Sandgerði og keflavík
Ingibjörg ST 37 árið 1983
Ekki svo langt síðan ég fór með ykkur í ferðalag aftur til ársins 1983 og við skoðuðum þá tvo, togara, Sigurfara II SH og Ólaf Jónsson GK
núna ætla ég aftur með ykkur í ferðalag og aftur til ársins 1983.
en að þessu sinni þá skoðum við ekki togara, heldur bát sem var gerður út frá Drangsnesi.
þessi bátur hét Ingibjörg ST 37, og var 70 brl eikarbátur sem var smíðaður árið 1958, og hét fyrst Heimir SU 100.
báturinn var nokkuð lengi á Drangsnesi/Hólmavík því að báturinn kom þangað 1980, og hét þá Skagaströst ST, en 1982 breyttist nafnið yfir í Ingibjörg ST
var báturinn gerður út þaðan til 1989 þegar að báturinn var seldur og hann var síðan dæmdur ónýtur árið 1992.
Ingibjörg ST stundaði að mestu rækjuveiðar á árinu 1983.
lítum á hvernig árið 1983 var hjá Ingibjörgu ST
Báturinn landaði að mestu rækju hjá Hraðfrystihúsi K.S.H á Hólmavík, en kom líka með rækjuafla til Hraðfrystihús á Dranganesi
Janúar.
Ingibjörg ST byrjaði árið á rækjuveiðum í Steingrímsfirði og byrjaði árið vel, var með 25 tonna afla í 9 róðrum og mest 8,8 tonn af rækju í einni löndun
Febrúar.
Ingibjörg ST var áfram á rækjuveiðum í Steingrímsfirði og var með 20,5 tonn í 12 rórðum sem öllu var landað á Hólmavík
Mars.
rækjuveiðin gekk vel hjá bátnum, var með 25,8 tonn í 11 róðrum og um miðjan mars þá hætti báturinn rækjuveiðum
Báturinn fór síðan suður til Þorlákshafnar og landaði þar 5,6 tonnum í einni löndun á trolli.
Apríl.
Ingibjörg ST var á trollveiðum frá Þorlákshöfn og gekk nokkuð vel , var með 54 tonn í 8 róðrum og mest 17,9 tonn í einni löndun.
Maí.
Hérna var Ingibjörg ST kominn aftur á heimasvæðin og núna kominn á rækjuna, en ekki rækjuveiðar í Steingrímsfirði, heldur úthafsrækjuna,
og landaði báturinn 22,1 tonni af rækju í 4 róðrum og til viðbótar 1,1 tonni af fiski, þess má geta að báturinn landaði í fyrsta róðinu í maí
á Drangsnesi 10,1 tonni af rækju
Júní.
Ingibjörg ST hélt áfram veiðum á útafsrækjunni og gekk ansi vel, því að báturinn var samtals með 39,3 tonna afla í fjórum róðrum
og af þessum afla þá var rækja 36,3 tonn, að mestu landað á Hólmavíkn en 8 tonnum landað á Drangsnesi
Júli
Rækjuveiðin í júlí gekk mjög vel, og Ingibjörg ST landaði alls 46 tonnum í 9 róðrum
og af þessum afla þá var 40,5 tonn af rækju , með 10,9 tonn í einni löndun , og var rækja af þeim afla 9,9 tonn
ÁGúst
Heildarafli 15,7 tonn í fjórum róðrum og af þessum afla þá var rækja 14,7 tonn
September
SEptember var síðasti mánuðurinn sem að Ingibjörg ST var á úthafsrækjuveiðum og hann endaði mjög vel.
báturinn var með 23,1 tonn í þremur róðrum og af þeim afla þá var rækja 20,7 tonn, og mest 8,8 tonn af rækju í einni löndun
Október.
Ingibjörg ST landaði engum afla í október.
Nóvember.
Rækjuveiðar í Steingrímsfirði hófust og var báturinn með 16,4 tonn í 11 róðrum
Desember.
í Nóvember og líka í Desember þá landaði Ingibjörg ST öllum rækjuafla sínum á Hólmavík
og í desember þá var báturinn með 8,5 tonn af rækju í 7 róðrum.
Heildarafli.
Heildaraflinn árið 1983 hjá bátnum var alls 303 tonn í 83 róðrum og var uppistaðan í þessum afla rækja 230 tonn,
en það sem er kanski merkilegast við árið 1983 hjá Ingibjörgu ST
var að báturinn var aflahæstur allra rækjubáta á Íslandi árið 1983, með 230 tonna afla.
Það má bæta við að það voru um 160 bátar á rækjuveiðum árið 1983 og af þeim bátum
þá voru aðeins sex bátar sem voru með yfir 200 tonna afla
og eins og segir
Ingibjörg ST aflahæsti rækjubáturinn árið 1983

Ingibjörg ST mynd Þórhallur Aron Másson