Íslandsmet hjá Bárði SH í mars.,2020
þessi mars mánuður árið 2020 er búinn að vera mjög góður sérstaklega hjá þessum fáum bátum sem voru á netaveiðum.
alls 6 bátar náður að fiska yfir 400 tonn í mars sem er feikilega góður árangur og af því þá foru 4 bátar með yfir 500 tonna afla,
Einn bátur skar sig þó úr að miklu leyti.
enn það var netabáturinn Bárður SH
Hann átti risamánuð því að aflinn hjá bátnum var alls 1009,7 tonn í 31 róðri eða 32,6 tonn í róðri.
Rosalegur afli svo ekki sé meira sagt.
enn er þetta Íslandsmet?
EFtir að hafa skoðað málin þá kemur í ljós að það hafa nokkrir netabátar náð yfir 700 tonn á einum mánuði,
t.d árið 1969 þegar að Sæbjörg VE fór í 734 tonn og 1970 þegar að Geirfugl GK fór í um 710 tonn
Gamla ÍSlandsmetið var sett árið 1989 og var það báturinn Þórunn Sveinsdóttir VE sem Sigurjón ÓSkarsson
var skipstjóri ár. landaði Þórunn SVeinsdóttir VE í apríl það ár 900 tonnum í aðeins um 20 róðrum eða um 45 tonn í róðri,
þetta þýðir að áhöfnin á Bárði SH setti nýtt íslandsmet í mestum afla netabáts á íslandi á einum mánuði,
alls 1009,7 tonn.
Bárður SH mynd Vigfús markússon
Áhöfnin á Bárði SH mynd Alfons Finnson.
frá vinstri. Sæbjörn Ágúst Svavarsson, Guðjón Árnason, Eiríkur Gautsson, Pétur Pétursson yngri, Loftur Bjarnarson, Jóhann Eiríksson, Pétur Pétursson Eldri
Helgi Már Bjarnason, Kristján Helgason, Höskuldur Árnason