Jökull ÞH sökk austur af Glettingi - 14 bjargað -3 létust

Núna í haust þá hafa þrír netabátar verið á grálúðuveiðum í net, djúpt norður af landinu og líka austur við Rauðatorg djúpt úti frá NEskaupstað.


Þessir þrír netabátar sem  hafa verið á þessum veiðum eru Kristrún RE, Þórsnes SH og Jökull ÞH.

Jökull ÞH
Jökull ÞH landaði á Akureyri síðast um 46 tonnum og af því þá var grálúða 42 tonn,

Jökull ÞH fór frá Akureyri snemma í nóvember og hafði verið að veiðum um 47 mílur út frá Melrakkasléttu og á leiðis að Kolbeinsey.

 á leið austur 
Báturinn sem er undir skipstjórn Kristins Hrannars Hjaltason, hafði líka í fyrri túrnum verið á veiðum við Rauðatorg, sem er í um 60 sjómílna

fjalægð frá Gerpi, og þangað var báturinn á leið núna í gær og dag 25.nóvember í mjög slæmu veðri, um 20 til 30 metrum á sekúndu og 4 til 5 metra ölduhæð.

Neyðarkall um kl 1700
Neyðarkall kom frá Jökli ÞH rúmlega kl 1700 í dag og var þá kominn sjór í bátinn.  mjög slæmt veður var þarna úti þar sem að báturinn var 

en Jökull ÞH var þá um 60 sjómílur út frá Glettingi

Netalúgur 
sjór hafði komist inn  um netalúgur sem eru aftast á Jökli ÞH og var það mikill sjór að bátinn tók að halla yfir á stjórnssíðuna, og áhöfn Jökuls ÞH sendi þegar í stað út neyðarkall

og aðstæður voru það slæmar að áhöfn bátsins sem telur 17 manns var gert að yfirgefa Jökull ÞH , en allir í áhöfn bátsins

voru þá komnir í flotgalla.

vandamál með björgunarbáta
um borð í Jökli ÞH voru þrír björgunarbátar, en aðeins einn þeirra losnaði frá, einn björgunarbáturinn fauk í burtu í veðrinu og þriðji björgunarbáturinn sat

fastur í Jökli ÞH.  Það mikill sjór var kominn í Jökul ÞH að báturinn sökk um níu leytið um kvöldið 25.nóvember.

áhöfn bátsins var þá kominn öll í sjóinn og 10 manns af áhöfn bátsins voru þá búnir að hlekkja sig saman.

 LHG sendi TF-Gró og TF-Sif
Landhelgisgæslan kallaði út þyrlusveit sína , en LHG hefur eina þyrlu,  og sömuleiðis þá var TF-Sif sent á vettvang, en hún var fyrst þarna út að Jökli.  og 

reyndi að kasta tveimur björgunarbátum niður að áhöfn bátsins.  

 Fjórir togarar og Svanur RE silgdu að Jökli ÞH 

Öllum fiskiskipum var gert að sigla að Jökli ÞH og fjórir togarar voru næstir Jökli ÞH,  uppsjávarskipið Svanur RE sem var á leið til Vopnafjarðar

og togarnir Harðbakur EA, Skinney SF og Vestmanney VE , auk þessa frystitogarinn Blængur NK frá Neskaupstað.

Svanur RE var fyrstur á vettvang en báturinn gekk um 13 til 14 mílur á leið að þar sem að Jökull ÞH sökk, og á eftir honum kom síðan Harðbakur EA.

Björgunarbáturinn Hafbjörg frá Neskaupstað kom líka á staðinn.  

Þyrlan TF. Gró var kominn af Jökli um hálf tíu.  

Töluverð ölduhæð var á staðnum þar sem að Jökull ÞH sökk en það má geta þess að dýpi þar sem að báturinn sökk var um 480 metrar, svo þetta var töluvert djúpt þarna 

sem að Jökull ÞH var og 17 manna áhöfn bátsins var í sjónum.

Björgunaraðgerðum lauk útá sjó um kl 2300 og var flogið með áhafnarmeðili til Egilstaða.

Ekki er vitað um líðan á áhöfn Jökuls ÞH.

 Uppfært klukkan 0900.

 Samkvæmt tilkynningu frá Gæslunni þá létust þrír sjómenn í þessu hræðilega slysi þegar að Jökull ÞH fórst

mikið þrekvirki var unnið með að ná öllum mönnum um borð í þyrluna og hluti af áhöfn Jökuls ÞH var síðan fluttur

til Reykjavikur með TF-Sif og flugvél frá Norlandair.

Aflafrettir sendir dýpstu samúðarkveðjur til aðstandenda þeirra þriggja sem létust, 


Jökull ÞH mynd Raufarhafnarhöfn

TF-GRó kemur til EGilstaða með áhöfnina af Jökli ÞH um kl 2340 . 25.nóvember, mynd Austufrétt








Jökull ÞH kominn á hliðina, tekið aftur á skut skjáskot af myndbandi.