Jón Ásbjörnsson RE með fullfermi.,2020
Var að þvælast með fjölskylduna mína suður frá Grindavík og að Þorlákshöfn. fallegt veður
enduðum í Þorlákshöfn og náði þar að mynda nokkra báta,
þar á meðal Jón Ásbjörnsson RE enn hann var að koma frá Selvogsbanka með fullfermi um 15 tonn,
báturinn var einn þar þennan daginn, enn deginum eftir semsé í dag 29.mars þá voru nokkrir bátar komnir þangað,
Báturinn ansi framsiginn með aflann, en vélarrúmið var stækkað í bátnum og við það þá minnkaði lestin aðeins og gerir það að verkum
að báturinn er nokkuð framsiginn með afla,
Þess má geta að myndband var tekið af bátnum koma til hafnar
og er þetta myndband fyrsta bátamyndbandið sem er tekið sem ekki er tekið í Sandgerði
Myndir Gísli Reynisson
<iframe width="560" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/C8-NCdqD0SI" frameborder="0" allow="accelerometer; autoplay; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture" allowfullscreen></iframe>