Kolbeinsey ÞH 10 árið 1983
Núna er ég á leiðinni í smá frí til Ítalíu, ekki langt , aðeins í sex daga, enn ég verð með tölvuna með mér
mun reyna að sinna síðunni eitthvað meðan ég er erlendis. mun líkegast henda inn gömlum pistlum
og ætla að henda inn hérna einum pistli, og fara með ykkur í ferðalag .
aftur til ársins 1983 og við ætlum að skoða togara sem var á Húsavík og hét þar Kolbeinsey ÞH 10.
Kolbeinsey ÞH 10 var smíðaður árið Akureyri og kom til Húsavíkur árið 1981, og var togarinn á Húsavík í um 15 ár
áður enn hann var seldur þaðan.
Annars lítum á hvernig árið 1983 gekk hjá Kolbeinsey ÞH.
Janúar.
Togarinn landaði engum afla í Janúar.
Febrúar.
Kolbeinsey ÞH hóf veiðar snemma í febrúar og fyrsta löndun var nokkuð góð 138 tonn.
samtals landaði togarinn 282 tonnum í febrúar í tveimur löndunum.
Mars.
Mars var feikilega góður því að togarinn kom í alls fjögur skipti með afla til Húsavíkur, en það má geta þess að allt árið 1983, þá landaði
Kolbeinsey ÞH öllum afla sínum á Húsavík.
í mars þá landaði Kolbeinsey ÞH 603 tonnum í fjórum ferðum , og það gerir um 151 tonn í löndun,
mest 171 tonn í einni löndun.
Apríl.
Kolbeinsey ÞH landaði í aðeins eitt skipti, en kom með fullfermi 200,2 tonn í land.
Maí.
Aðeins tvær landanir hjá togaranum, samtals 226,5 tonn.
Júní.
Kolbeinsey ÞH landaði aðeins tvisvar, en kom með fullfermi og heldur betur í annari ferðinni.
Samtals var aflinn 403,6 tonn og þar af var stærsta löndun ársins 236,8 tonn sem fékkst eftir 8 daga á veiðum, það gerir um 29,5 tonn á dag.
Júlí..
Júlí var mjög góður, en Kolbeinsey ÞH landaði alls 542 tonnum í aðeins þremur löndunum og það gerir um 180 tonn í löndun,
mest 202 tonn í einni löndun.
Ágúst.
Ágúst var líka góður, en togarinn landaði aftur þrisvar, og var með 491 tonn , sem gerir 164 tonn í löndun,
mest 177 tonn í einni ferð.
September.
Góður mánuður og Kolbeinsey ÞH landaði í fjögur skipti alls 453,9 tonnum , og það gerir 113 tonn í löndun.
Október.
Október byrjaði með látum, því að togarinn kom með fullfermi til Húsavíkur, alls 215 tonn í einni löndun
en síðan dró töluvert úr veiðinni og var aflinn alls 313 tonn í þremur löndunum.
Nóvember.
Nóvember var frekar rólegur, en Kolbeinsey ÞH landaði alls þrisvar og kom með 222 tonn í land úr þessum þremur löndunum.
Desember.
í þessum mánuði þá landaði togarinn 219 tonnum í tveimur löndunum og þar af 132 tonn í einni löndun.
Heildarafli.
Heilt yfir má segja að árið 1983 hafi verið mjög gott hjá Kolbeinsey ÞH því að togarinn landaði engum afla í janúar og í apríl var aðeins ein löndun ,
samtals var aflinn árið 1983 alls 4124 tonn í 30 löndunum.
og það gerir um 137 tonn í ferð, sem er býsna gott

Kolbeinsey ÞH Mynd Þór Jónsson