Korsens F-39-BD líka að landa 21.1.2018

Aflafrettir fá ekki bara myndir frá Íslenskum lesendum,


heldur líka frá lesendum í Noregi,

einn af þeim bátum sem eru á línubátalistanum í Noregi er Korsnes F-39-BD.  þar er  Hans Martin skipstjóri á og í gær á sama tíma þegar að Þórsnes SH var að landa í stykkishólmi þá voru þeir að landa á Korsnesi  í Bátsfirði 20,5 tonnum,

þeir fengu þann afla á 60 bala og gerir það um 341 kíló á bala,

af þessum afla 20,5 tonnum þá var þorskur 10,7 tonn og ýsa 9,6 tonn.

Þessi bátur fékk um 290 tonn í nóvember 2017.

Þessi bátur er smíðaður úr eik árið 1987 og er 19,55 metra langur og mælist um 70 tonn




Korsnes Myndir Hans Martin