Kristinn ÞH í mokveiði í aðeins 30 net.


Fyrir nokkrum dögum síðan þá var birt frétt hérna á Aflafrettir sem varðaði áhöfnin á Björn Hólmsteinsson ÞH frá Raufarhöfn sem var að færa sig yfir á Kristinn ÞH

en þeir fiskuðu ansi vel í mars og var titill fréttarinnar " Aflakóngarnir frá Raufarhöfn komnir á bát nr.2"


Apríl
Núna í apríl þá hefur áhöfnin á bátnum fiskað ansi vel og byrjuðu t.d listann bátar að 21 BT á toppnum og enduðu netaúthald sitt með látum núna fyrir stutt.


enda, jú vegna þess að þeir eru að fara á grásleppuna, og  munu síðan fara aftur á þorskanetin eftir að grásleppunni lýkur,


Lokaróðurinn stóri
Í síðasta róðri sínum fyrir grásleppuna þá fóru þeir út með aðeins 30 net í 3 trossum og fengu í þær smekkfullan bát , því þeir komu í land með 13,7 tonn.  


Björn Þór Baldursson skipstjóri sagði í viðtali við aflafrettir að " Þessi afli fékkst inn í Lónafirði í Þistilfirði og þangað er um 25 mílur frá Raufarhöfn, líklega nálægt 3 mílum frá Þórshöfn.


Annarsvega voru 2 trossur önnur trossan var 9" riðil og hin var 9,5" riðil,

Þessar trossur voru dregnar nánast í kálgarðinum á Gunnarasöðum (heima hjá Steingrími j Sigfússyni alþingismanni he he) og gáfu þessar trossur saman um 10 tonn, (20 net) og náðu frá 9 föðmum niður á 12 faðma og nokkuð jafnt í þær.


3 trossan (9"tommu riði 10 net)
var dreginn undan bökkunum rétt norðan við þórshöfn og var á svipuðu dypi og hinar afli um 4 tonn.


Þarna var báturinn orðinn smekkfullur bæði lest og á dekki öll kör full og rúmlega það,báturinn bar þetta nokkuð vel svolítið rasssíður en það var gott í sjóinn.


Það er árlega sem fiskurinn safnast saman þarna til að hrygna og er alla jafna mikið magn af fiski á þessu tíma í Lónafirði og norðan við Grenjanes og Litlanes, þekktir hrygningar staðir og hefur verið um árabil."


Loðnan
í viðtölum mínum við skipstjóra um allt land t.d í fréttinni um Dagrúnu HU og í samtölum við skipstjóra á bátum á sunnanverðu landinu þá tala allir um það sama. Loðna útum allt


og hjá Kristinn ÞH var þar enginn undantekning.  loðna útum allt í Þistilfirði og fiskurinn fylgir þar með.


Það  má geta þess að myndband var tekið þegar að báturinn kom til hafnar með aflann og 


hægt er að sjá það hérna.


En já nokkuð er ljós að fyrsta fréttin um aflakónganna frá Raufarhöfn heldur sér áfram,  framundan er grásleppan og verður fróðlegt að sjá hvernig þeim gengur þar.




Kristinn ÞH kominn í land með aflann mynd Raufarhafnarhöfn,


Áhöfnin á Kristinn ÞH sem líka var á Björn Hólmsteinsson ÞH 
frá vinstri.  Júlíus Pétur Bergsson, Björn Þór Baldursson skipstjóri og Rögnvaldur Björnsson

Kristinn ÞH með 14 tonnin. skjáskot úr myndbandinu


Aflakóngar