Kristinn HU fyrstur árið 2023.
Árið 2023 er komið af stað
og vil ég óska lesendum Aflafretta gleðilegs nýrs árs, og með þökkum fyrir það gamla.
2.janúar og sjávarútvegurinn er svo til að komast af stað eftir jólin og áramótin
og þegar þetta er skrifað þá eru nokkrir togarar og línubátar komnir á veiðar.
sá bátur sem fór fyrstur af stað núna árið 2023
var Kristinn HU. Báturinn fór af stað um kl 2330, 1.janúar 2023, silgdi að löndunarkrana í Ólafsvík þar sem að balar voru teknir um borð og fór
frá Ólafsvík stuttu síðar.
um miðnætti þá voru nokkrir togarar t.d frá Dalvík og Akureyri sem fóru á sjóinn.
Kristinn HU mynd Hafsteinn Þórarinn Björnsson