Landaður afli eða Veiddur afli!,2020
Þegar að fyrsti lokalistinn kom yfir togaranna árið 2019.
þá kom í ljós að 2 togarar höfðu veitt yfir tíu þúsund tonn, Viðey RE og Björg EA,.
þarna var miðað við Landaðan afla.
margir vildu meina það að listinn ætti að miðast við Veiddan Afla og þá hefði Björg EA verið aflahæstur,
Það var nefnilega þannig að Viðey RE landaði 2.janúar afla sem var veiddur seint á árinu 2018, um 150 tonnum og taldist sá afli með
til 2019.
En Viðey RE var ekki eini togarinn sem landaði afla snemma í janúar 2019, því það voru alls 4 togarar sem voru með skráðan afla snemma árs 2019.
Þetta voru,
Málmey SK með 175,3 tonn,
Akurey AK með 149,1 tonn
Viðey RE 150 tonn
Páll Pálsson ÍS 106,2 tonn.
Allur þessi afli var inná heildarlistanum fyrir árið 2019 þegar að Viðey RE er skráður aflahæstur,
enn á að setja þennan afla af þessum 4 togurum inná árið 2018 sem Veiddur afli eða inná árið 2019 sem landaður afli
Við hvað á að miða?.
Aflafrettir leituðu svara frá Fiskistofu um hvort þeir miða við Veiddan afla eða Landaðan afla þegar þeir gera upp almannaksárið,
og þeirra svar var að þeir miðað við Landaðan afla,
Sem þýðir að ef togarinn er með skráðan afla snemma árs þá telst sá afli til þess árs sem landað er,
Það þýðir að togarnir sem lönduðu snemma árs 2019 eru með þann afla skráðan inná árið 2019,
og það þýðir líka að togarnir sem eru með skráðan afla snemma árs 2020 eru með þann afla skráðan á árið 2020,
Aflafrettir munu því framvegis gera eins og Fiskistofa og miðað við Landaðan afl.
Og af því þá er það ljóst að Viðey RE var aflahæstur árið 2019.
Viðey RE mynd Anna Kristjánsdóttir