Langanes GK 555,2020

Eins og greint var frá í frétt hérna á Aflafrettir.is um einn frægasta netabát Íslands,  Grímsnes GK þá lenti báturinn í frekar alvarlegri 


vélarbilun  og var dreginn til  hafnar.  


Hólmgrímur sem á og gerir út Grímsnes GK hafði árið 2019 keypt bátinn Grundfirðing SH  og sá bátur heitir í dag Langanes GK,

Langanes GK kom á flot í dag 18.febrúar  og mun báturinn fara á netaveiðar og taka við af Grímsnesi GK,

Grímsnesi GK verður ekki lagt, heldur verður vélin löguð og líka verða smá endurbætur gerðar 

á vistarverum og matsal bátsins sem og brúnni.   síðan mun báturinn fara á veiðar.  

Sigvaldi Hólmgrímsson verður skipstjóri á Langanesi GK og sagði hann í smá samtali við Aflafrettir að Langanes GK er aðeins minni bátur enn Grímsnes GK

t.d er skrokkurinn á Grímsnesi GK um 12 mm þykkur enn á Langanesi GK um 8 mm þykkur.  

sömuleiðis þá er stærri vél í Grímsnesi GK en í Langanesi GK,

það er tilhlökkun í áhöfn Grímsnes GK að fara yfir á nýja bátinn.

enn svo er það  Grænn eða Rauður.  hvor fer bátnum betur.  

Aflafrettir óska Hólmgrími, Sigvalda og áhöfn batsíns til hamingju með nýjan bát.










Myndir Gísli Reynisson 

Grundfirðingur SH  núna Langanes GK.  Mynd Vigfús Markússon