Langanes GK, myndir og fleira frá atburði dagsins.,2020


Eins og greint var frá snemma í dag 23.febrúar þá kom upp smávægileg vélarbilun í Langanesi þegar þeir voru við veiðar

skammt undan við Sandgerði  þegar að fæðidælan við aðalvélina bilaði,

björgungarskipið Hannes Þ. Hafstein frá Sandgerði sem er á forræði Sigurvonar kom út og tók Langanes GK í 

tog og var um 4 klukkutíma að toga bátinn til njarðvíkur,

þegar báturinn nálgaðist Njarðvík þá kom dráttarbáturinn Auðunn frá Keflavík og tók við Langanesi og Hannes Þ. Hafstein 

var þá notað sem akkeri .

vel gekk að draga bátinn þrátt fyrir nokkra ölduhæð,  eftir að Langanes GK kom að bryggju í Njarðvík

þá var ekki nema um 30 mín liðnir þangað til að ný fæðidæla var kominn.

Hérna eru myndir frá björgunni frá Stéfani sem var um borð í Hannesi Þ.  Hafstein

Sigvalda skipstjóra á Langanesi GK 

og mér sjálfum

það má geta þess að ég gerði stutt myndband 





Hannes Hafstein kominn að Langanesi GK útaf Sandgerði.  Mynd Stefán Örn Ólafsson


Langanes GK ´í togi Mynd Stefán Örn Ólafsson


Þarna er Auðunn búinn að taka Langanes GK í tog og Hannes Hafstein er þarna sem akkeri.  Mynd Sigvaldi Eiríkur Hólmgrímsson skipstjóri á Langanesi GK










Myndi Gísli Reynisson