Langanes GK og Pálína Þórunn GK ,2020
mars komin í gang.
og veiðin heldur áfram að vera góð. Langanes GK sem kom í staðinn fyrir Grímsnes GK hefur verið að fiska vel í netin undanfarið
og Aflafrettir náðu fínum myndum af bátnum koma til Sandgerðis núna 6.mars með um 15 tonn.
Sigvaldi skipstjóri silgdi fumlaust inn að bryggju og var ansi flott að sjá bátinn koma þarna inn.
þar á eftir kom síðan Pálína Þórunn GK enn hún var með fullfermi um 70 tonn eftir aðeins 3 daga á veiðum,
var Pálína Þórunn GK á veiðum skammt utan við Sandgerði
Snorri skipstjóri á Pálínu Þórunni GK var sáttur með góðan túr
Pálína Þórunn GK hefur verið að veiðum skammt utan við Sandgerði er þar í hópi með t.d togbátunum frá Grundarfirði, t.d Sigurborgu SH, FArsæl SH og Runólfi SH.
allir þeir bátar reyndar fylla sig og sigla með aflann til Grundarfjarðar, í stað þess að fara í styðstu höfn
veiði togbátanna hefur verið góð og var Pálína Þórunn GK með þónokkuð af kola í aflanum sínum
hérna eru smá myndir af þeim tveimur
Snorri skipstjóri á Pálínu Þórunn GK. Myndir Gísli Reynisson