Ligrunn H-2-F með mesta aflaverðmætið í Noregi 2019.
núna liggja fyrir endanlegar aflatölur og aflaverðmæti fyrir flest alla báta sem eru gerðir út í Noregi.
þar á meðal uppsjávarskipin þeirra í Noregi,
og vekja þær tölur nokkra athygli,
það voru alls 4 skip í Noregi sem fiskuðu meira en 20 þúsund tonn og aflahæsta skipið í Noregi árið 2019 var Vikingbank R-3-K sem var með tæp 29 þúsund tonn
Aftur á móti þá var Ligrunn H-2-F með mesta aflaverðmætið,
Ligrunn H-2-F var með tæp 27 þúsund tonna afla og aflaverðmæti alls 1,7 milljarður króna eða 63,6 krónur í meðalverð
Eins og sést í töflunni að neðan þá er Hardhaus með mesta meðalverðið eða 85,9 krónur sem er ansi hátt og nokkur skip eru með yfiir 80 krónur í meðalverð
Til samanburðar við Ísland þá var Venus NS aflahæstur og með mest aflaverðmæti árið 2019,
Venus NS var með rúm 47 þúsund tonna afla og aflaverðmæti uppá 1,6 milljarða króna, það gerir 35 krónur í meðalverð.
Hérna að neðan má sjá lista yfir Norsku skipin og aflaverðmætið hjá þeim árið 2019 og til samanburðar Íslensku skipin
Nafn Afli Aflaverðmæti Meðalverð
Ligrunn H-2-F 26986 1,7 milljarður 63,6 kr
Vikingbank R-3-K 28983 1,4 milljarður 49,6 kr
Harvest H-1-AV 18985 1,32 milljarð 69,7 kr
Akeröy N-200-DA 20439 1,32 milljar 64,7 kr
Hardhaus H-120-AV 15099 1,29 milljar 85,9 kr
Österbris H-99-AV 24251 1,27 milljarður 52,6 kr
Havstál M-300-A 17404 1,25 milljarður 71,8 kr
Gerda Marie H-32-AV 14592 1,17 milljarður 80,8 kr
Kvannöy N-400-B 14417 1,16 milljarður 81,1 kr
Venus NS 47279 1,67 milljarður 35,3 kr
Beitir NK 44448 1,52 milljarður 34,3 kr
Börkur NK 43435 1,53 milljarður 35,3 kr
Víkingur AK 41446 1,42 milljarður 34,4 kr
Ligrunn Mynd Endre J Eidesvik
Vikingbank Mynd Reidar E.Jensen