Línumok frá Sandgerði eftir hrygningarstopp

Þá er þessu blessaða hrygningarstoppi lokið


og heldur betur sem það er búið að vera mokveiði hjá bátunum 

og þá sérstaklega hjá línubátunum sem voru að róa frá Sandgerði.

en þeir voru allir á veiðum stutt frá landi, frá svo til Sandgerði og áleiðis að Stafnesi.

Bátarnir komu í land svo til með fullfermi og það allir eftir eina lögn. og uppreiknað á bala  þá var aflinn í kringum

450 kíló á bala hjá bátunum, og er það feikilega góð veiði

Kristján HF
sem dæmi þá kom Kristján HF með 39 tonn í 2 róðrum og þar af 23,3 tonn sem fékkst á eina lögn.

uppreiknað á bala þá er það um 450 kíló á bala

 Margrét GK
Margrét GK sem er nokkuð minni bátur enn Kristján HF mokveiddi og kom drekkhlaðinn  tvo daga í röð

og landaði alls 38,5 tonnum í 2 róðrum og þar af 20,5 tonn í einni löndun,  

eins og hjá Kristjáni HF þá var aflinn uppreiknað á bala um 450 kíló.

 Indriði Kristins BA
Indriði Kristins BA kom með 32 tonn í aðeins tveimur róðrum og ein lögn hvor róður.

 Axel á Óla á Stað GK hæstur
en Óli á Stað GK var nú samt sem áður sá bátur sem veiddi hvað mest

hann kom með alls 42 tonn í aðeins 2 róðrum 

og í fyrri róðrinum þá landaði báturinn 17,8 tonnum , og það gerir um 444 kíló á bala,

og í seinni róðrinum þá landaði báturinn 24,1 tonni, og þá var báturinn með nokkuð fleiri króka

hann var 17 þúsund króka í fyrri róðrinum og 22 þúsund króka í þeim síðari.

seinni róðurinn sem var 24,1 tonn gerir því 462 kíló á bala.

og Axel skipstjóri var heldur betur sáttur með þessa mokveiði sem hann lenti í

Óli á Stað GK Mynd Gísli Reynisson

Kæru Lesendur.
kt 200875-3709
Bók 0142-15-380889
Takk kærlega fyrir
Gísli Reynisson