Lísa María ÓF 26 árið 1993 og meira


Ég hef ansi gaman að fara með ykkur í ferðalag aftur í tímann, og núna ætla ég með ykkur ekki langt aftur í tímann

í raun bara aftur til ársins 1993 og við ætlum að skoða bát sem var ansi merkilegur, og átti sér því miður mjög stutta sögu hérna á landinu

Árið 1992. þá komu til Íslands þrír stórir yfirbyggðir línubátar, og af þessum þremur þá eru tveir þeirra ennþá á veiðum árið 2026

þeir voru systurbátar sem hétu Tjaldur SH og Tjaldur II SH, Tjaldur II heitir í dag Núpur BA

 Lísa MAría ÓF þriðji báturinn

þriðji stóri línubáturinn sem kom árið 1992 var Lísa María ÓF 26.

Lísa María ÓF  kom til landsins árið 1992, en þessi bátur var nokkuð sérstakur, en hann var frambyggður yfirbyggður stálbátur sem var sérhannaður sem 

línubátur, og var líka hægt að breyta bátnum í veiðar með troll eða dragnót

báturinn var með þrjár vinnslulínu um borð, en hægt var að heilfrysta, flakafrysta og vinna í saltfisk allt á sama tíma, auk þess að vera með ferskan fisk.

Lísa María ÓF var smíðuð í Noregi árið 1988 og  hafði legið við bryggju í Seattle á Vesturströnd Bandaríkjanna í heilt ár, áður enn báturinn var keyptur,.

 5 Vikna sigling til Íslands

mjög löng sigling var með bátinn til ÍSlands, en silgt var frá Seattle suður til Panama og þaðan farin Panamaskurðurinn til Bermúda og þaðan til Íslands.  

Siglinginn var í heildina um 10 þúsund sjómílur eða um 16 þúsund kílómetrar.  sex manna íslensk áhöfn fór út til að sækja Lísu Maríu ÓF , og skipstjóri 

var Númi Jóhannsson, en hann var síðan með bátinn, ferðalagið til Ólafsfjarðar tók alls fimm vikur.

Lísa María ÓF var 37,6 metrar á lengd,  10,6 metrar á breidd, um borð í bátnum var Mustad beitningavél með 27 þúsund krókum, og lestin tók um 200 tonn af afla í lestina.


 Veiðar hófust árið 1992
Lísa María ÓF hóf veiðar í október árið 1992 og kom með 127 tonn í land í fyrstu löndun sinni

í nóvember þá landaði Lísa María ÓF 203 tonnum í 2 róðrum og í desember þá landaði bátuirnn 144 tonnum í einni löndun.

 1993.

 Janúar og Febrúar
 Árið 1993 var í raun og veru eina árið sem að Lísa María ÓF var gerð út, en það gekk nokkuð vel  hjá bátnum 

Báturinn hóf veiðar í janúar, en landaði ekki fyrr en í febrúar og var þá með tvær landanir í febrúar alls 253 tonn og mest 145 tonn í einni löndun.

 Apríl.

 Lísa María ÓF landaði í apríl 152 tonnum í tveimur róðrum .

 Júní.

 Báturinn var við veiðar í maí, og landaði snemma í júní og var með nokkuð stóran róður, en báturinn landaði 169,4 tonnum í einni löndun, og þetta var afli sem var heilfrystur um borð.

 Júli.

 Júlí gekk nokkuð vel en þá landaði Lísa María ÓF 249 tonnum í tveimur róðrum og mest 141 tonn í einni löndun.

 September.
 
Í september þá landaði Lísa María ÓF 155 tonnum í  einni löndun ,og var þetta afli sem var heilfrystur um borð.

 Október.

 Frekar lítill afli í október, var með 31 tonn í einni löndun af ísfiski.

 Nóvember.

Báturinn landaði 133,6 tonnum í einni löndun sem var heilfryst um borð.

 Desember.

 Lísa María ÓF landaði snemma í desember stærstu löndun sinni uppá 183,7 tonn, og var þetta  heilfrystur afli,

en þessi stóra löndun var reyndar síðasta löndun bátsins á ÍSlandi.

Heildarafli.

 Heildarafli Lísu Maríu ÓF árið 1993 var alls 1326 tonn í aðeins 11 róðrum og til viðbótar aflanum sem að báturinn landaði seinniparts árs árið 1992

þá var aflinn hjá Lísu Maríu ÓF tæp 1800 tonn þennan stutta tíma sem að báturinn var gerður út á ÍSlandi.

 Endalok 60 daga sigling

 Ferðalagið þegar að Lísa María ÓF var keypt til  ÍSlands árið 1992 var löng og tók alls 5 vikur

en báturinn var síðan seldur í Desember 1993 til Rússnesk fyrirtækis og fór báturin þá í langa siglingu alla leið til Sakhalin eyju í Kyrrahafi

en þangað var 60 daga sigling, eða rúmlega 8 vikna sigling frá Ólafsfirði þar sem að báturinn var gerður út

þegar að skipið var selt þá fór einn íslendingur með bátnum út og það var Magnús Lórenzson sem var vélstjóri á Lísu Maríu ÓF 



Lísa María ÓF mynd Einar Núma

Kæru Lesendur.
kt 200875-3709
Bók 0142-15-380889
Takk kærlega fyrir
Gísli Reynisson